Lenya Rún Taha Karim varaþingmaður Pírata gerði málsmeðferðartíma kynferðisbrotamála að umtalsefni undir liðnum störf þingsins á Alþingi í vikunni.
Hún sagði að ástandið væri óboðlegt, eins og oft hefði verið bent á, og ákallið um breytingar hefði eflaust ekki farið fram hjá neinum.
„Raunin er sú að enn situr stór hópur eftir sem á um sárt að binda, hópur fólks sem treystir réttarkerfinu ekki og réttilega svo. Þessi hópur fólks er látinn bíða út í hið óendanlega. Hann er í rauninni alfarið hlunnfarinn af kerfinu. Það er erfitt að treysta kerfi sem frestar rannsókn og dregur meðferð máls manns í sífellu. Að lokum verður kerfið rúið trausti sem er skelfileg tilhugsun,“ sagði hún.
Vantar traust
Lenya Rún nefndi að orðið á götunni væri að málsmeðferðartíminn væri of mikil fyrirstaða sem hefði það í för með sér að fólk sleppti því jafnvel að kæra.
„Það að sumt fólk kæri ekki kynferðisbrot vegna tímans sem málsmeðferð gæti tekið er algjörlega óásættanleg staða sem er einmitt það sem gerist þegar stofnanir og ákæruvaldið njóta ekki trausts brotaþola. Við erum komin á þann stað að það tekur að meðaltali 14 mánuði fyrir lögregluna að rannsaka nauðgunarbrot.
Hvers konar kerfi er það? Það hlýtur að vera markmið og vilji Alþingis að lögin sem við setjum og fjármagnið sem við veitum í stofnanir stuðli að sanngjörnu réttarkerfi en skilji fólk ekki eftir með laskaða trú á kerfunum sem við höfum skapað,“ sagði hún.
Telur Lenya Rún að ákæruvaldið eigi ekki eitt sök enda sé það þeirra á Alþingi að efla lögregluna með fræðslu og mönnun til að yfirfara þessi mál af vandvirkni. „Biðin eftir málalokum skapar ólíft andrúmsloft fyrir alla aðila sem eru málum viðkomandi, biðin ein og sér skapar óþarfa þjáningar og óvissu og töf á málum hefur það oft í för með sér að refsing er milduð eða jafnvel felld niður. Við eigum að hvetja fólk til að leita réttar síns en ekki að fæla það í burtu frá því.“