Athygli heimsins á fallandi hlutabréfaverði í kauphöllum

h_99338580-1.jpg
Auglýsing

Fréttir af lækk­andi verði á hluta­bréfum og áfram­hald­andi fall olíu­verðs eru alls­ráð­andi í íslenskum og erlendum fjöl­miðlum í dag. Bæði Morg­un­blaðið og Frétta­blaðið eru með for­síðu­fréttir um atburði gær­dags­ins, þegar hluta­bréfa­vísi­tölur um allan heim féllu skarpt í kjöl­far þess að hluta­bréfa­bólan í Kína virð­ist vera sprung­in.

Í fyr­ir­sögn Morg­un­blaðs­ins stendur "Svartur dagur í kaup­höll­un­um". Þar er farið yfir þá þróun sem átti sér stað í gær, þegar hluta­bréf í Kína féllu um 8,5 pró­sent (og hafði fallið um fimm pró­sent á föstu­dag), FTSE-­vísi­talan í Bret­landi lækk­aði um 4,6 pró­sent og Dow Jones-­vísi­talan í Banda­ríkj­unum um 3,6 pró­sent. Þá fór vert á tunnu á olíu niður í um 38 dali á heims­mark­aði, en það var um 116 dalir í júlí 2014. Verðið á olíu hefur ekki verið jafn lágt frá árinu 2009.

Versti dag­ur­inn á Íslandi það sem af er ári



Á Íslandi lækk­uðu hluta­bréf í öllum skráðum ­fé­lögum í verði í Kaup­höll Íslands í gær. Við­skipta­dag­ur­inn var sá versti það sem af er ári og aðeins sex sinnum frá árinu 2010 hafa hluta­bréf í Kaup­höll­inni lækkað meira á einum degi. Mest lækk­uðu bréf í Öss­uri og Nýherja, um 4,3 pró­sent og 4,7 pró­sent. Úrvals­vísi­talan lækk­aði um 2,5 pró­sent.

Morg­un­blaðið ræddi meðal ann­ars við Ásdísi Krist­jáns­dótt­ur, for­stöðu­mann efna­hags­sviðs Sam­taka Atvinnu­lífs­ins. Hún sagði við blaðið að þótt Íslend­ingar hagn­ist á lægra verði inn­fluttra vara geti kreppa erlendis skert útflutn­ings­tekjur og leitt til lægra verðs á fiski og áli.

Auglýsing

Á for­síðu Frétta­blaðs­ins í dag stend­ur: "Áhyggjur af öðru hruni ótíma­bær­ar". Þar er lagt út frá sam­tali við Björn Berg Gunn­ars­son, fræðslu­stjóra VÍB, ­eigna­stýr­ing­ar­þjón­ustu Íslands­banka. Hann segir í sam­tali við blaðið að íslenska kaup­höllin sé mun heil­brigð­ari en áður. "Hún er dreifð­ari þar sem hluti fyr­ir­tækja er með tekjur í erlendri mynt og hluti í inn­lend­um. Það eru ólíkir hlutir sem hafa áhrif og fall mark­aða í Kína er ekki afger­andi fyrir íslenskan mark­að.“ Páll Harð­ar­son, for­stjóri Kaup­hallar Íslands, bendir síðan á að fallið á hluta­bréfum í íslensku kaup­höll­inni í gær hafi ein­ungis verið lítið brot af hækkun Úrvals­vísi­töl­unnar það sem af er ári. Eftir dag­inn í gær nam hækkun vísi­töl­unnar á árinu nítján pró­sent­um.

Fallið heldur áfram í Asíu



Þeir sem voru að von­ast eftir því að það versta væri yfir­staðið fá ekki ósk sína upp­fyllta. Þegar mark­aðir opn­uðu í Asíu í morgun hélt hið skarpa fall hluta­bréfa­verðs í Kína áfram. SCI (Shang­hai Composite Index) vísi­tala hluta­bréfa­mark­að­ar­ins í Kína lækk­aði um 6,4 pró­sent þegar við­skipti hófust.

Öll ávöxtun hluta­bréfa­mark­að­ar­ins í Kína á árinu er nú horf­in, og gott bet­ur, þrátt fyrir að mark­að­ur­inn hafi nærri þre­fald­ast á ein­ungis þriggja mán­aða tíma­bili, frá mars til júní.

Fjár­festar virð­ast ótt­ast efna­hags­erf­ið­leika í Kína, sem veldur því að þeir ­selja hluta­bréf og færa sig í aðra eigna­flokka.

FTSE vísi­talan í Bret­landi virð­ist þó vera aðeins að bragg­ast og hækk­aði lít­il­lega í morgun við opnun mark­aða. Sam­kvæmt frétt BBC nemur hækk­unin nú, rétt um klukkan átta að íslenskum tíma, um 1,9 pró­sent­um.

Íslenska kaup­höllin opnar eftir um klukku­tíma og banda­rískir mark­aðir síð­degis í dag.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None