Atvinnuleysi á Íslandi þrjú prósent, í Evrópu er það tíu prósent

mynduppi.jpg
Auglýsing

Atvinnu­leysi í sept­em­ber síð­ast­liðnum var ein­ungis þrjú pró­sent. Það er minnsta at­vinnu­leysi sem mælst hefur frá því í októ­ber 2008, mán­uð­inum sem íslenskt fjár­mála­kerfi hrundi. Þá mæld­ist atvinnu­leysi 1,9 pró­sent. Þetta kemur fram í nýjum atvinnu­leysis­tölum Vinnu­mála­stofn­unar sem gerðar voru opin­berar í gær.

Staðan í atvinnu­málum á Íslandi er umtals­vert betri en hún er í Evr­ópu. Innan ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins er það 10,1 pró­sent og þegar horft er ein­vörð­ungu til þeirra ríkja sem eru með evru sem gjald­miðil er atvinnu­leysið 11,5 pró­sent. Ísland er einnig í mun betri stöðu en Banda­ríkin þar sem atvinnu­leysi mælist 6,1 pró­sent.

Fór mest í 9,5 pró­sent 2010



Alls voru 5.029 manns skráðir atvinnu­lausir hér­lendis í síð­asta mán­uði. Þeim fækk­aði um 393 að með­al­tali frá mán­uð­inum á und­an.  Mest fór atvinnu­leysið upp í 9,5 pró­sent eftir hrun. Það gerð­ist í febr­úar 2010. Síðan hefur það farið hratt lækk­andi sam­hliða auknum hag­vexti, minni verð­bólgu og öðrum jákvæðum hag­töl­um.

Rúm­lega 500 fleiri konur eru atvinnu­lausar en karl­ar. Um helm­ingur atvinnu­lausra hefur verið án atvinnu í meira en hálft ár og 1.511 manns hafa verið atvinnu­lausir í meira en eitt ár. Á meðal íslenskra ung­menna, á aldr­inum 18 til 24 ára, er atvinnu­leysi fremur lít­ið. Alls eru 771 í þeim ald­urs­hópi án atvinnu, eða um 14 pró­sent allra skráðra.

Auglýsing

Atvinnu­leysi lækkar í Evr­ópu



Staðan er aðeins öðru­vísi í Evr­ópu. Í ágúst síð­ast­liðnum voru fimm milljón ung­menna undir 25 ára aldri sem búa innan Evr­ópu­sam­bands­ins atvinnu­laus. Það eru um 21,6 pró­sent vinnu­færra manna. Töl­urnar fara þó lækk­andi. Alls fækk­aði ungum atvinnu­lausum innan sam­bands­ins um 602 þús­und á milli ára. Þetta kemur fram í nýj­ustu tölum Eurostat, hag­stofu Evr­ópu­sam­bands­ins.

Mest er atvinnu­leysið í Grikk­landi, þar sem 27 pró­sent vinnu­færa manna er án atvinnu. Þar á eftir kemur Spánn með 24,4 pró­sent atvinnu­leysi. Þess ber þó að geta að bæði löndin eru þekkt fyrir mikla svarta atvinnu­starf­semi, sér­stak­lega í þjón­ustu­geirum sem tengj­ast ferða­þjón­ustu með ein­hverjum hætti, og því eru líkur á því að raunatvinnu­leysi sé minna en opin­berar tölur gefa til kynna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None