Aukin þorskveiði eykur hagvöxt

Gadus-morhua-Cod.2b.Atlanterhavsparken.Norway.jpg
Auglýsing

Aukin þorsk­veiði mun skila tæp­lega 10 pró­sentum meiri útflutn­ings­verð­mætum á árs­grund­velli en á síð­asta fisk­veiði­ári. Hag­vaxt­ar­á­hrif þessu verða um 0,4 pró­sent, miðað við breytta veiði­ráð­gjöf Haf­rann­sókn­ar­stofnun fyrir næsta fisk­veiðiár sem hefst þann 1. sept­em­ber næst­kom­andi. Stofn­unin leggur til veru­lega aukna veiði á þorski og fer ráð­gjöfin úr 216 þús­und tonnum í 239 þús­und tonn. Auk þess má búast við að hag­vaxt­ar­á­hrif loðnu­ver­tíð­ar­inn­ar, sem var mun betri en í fyrra, verði um 0,8 pró­sent.

Hag­fræði­deild Lands­bank­ans fjallar um ákvörðun Hafró í dag og mögu­leg áhrif á hag­vöxt og útflutn­ings­verð­mæti þorskafl­ans. „Á síð­asta ári námu þorsk­veiðar íslenskra skipa um 236 þús­und tonnum en þar af voru 221 þús­und tonn veidd á Íslands­miðum en tæp 15 þús­und tonn á öðrum svæð­um. Útflutt magn af þorski reynd­ist hins vegar 118 þús­und tonn eða um helm­ingi lægra en mun­ur­inn þarna á milli liggur í vinnslu á veiddum afla,“ segir í Hag­sjá bank­ans. Útflutt magn af þorski skap­aði þannig tæp­lega 90 millj­arða króna útflutn­ings­tekjur og gera má ráð fyrir að 23 þús­und tonna aukn­ing á kvóta skili tæp­lega 10 pró­sentum meira í tekj­ur, eða 8,6 millj­örðum króna.

Auglýsing


„Að öðru óbreyttu má gera ráð fyrir tölu­verðum hag­vaxt­ar­á­hrifum af fisk­veiðum á þessu ári en til við­bótar auknum þorsk­veiðum var loðnu­ver­tíðin mun betri en í fyrra og má ætla að hag­vaxt­ar­á­hrif loðnu­ver­tíð­ar­innar nemi um 0,8%. Öfugt við þorsk­stofn­inn hefur loðnu­stofn­inn frekar leitað niður á við á síð­ustu árum,“ segir enn­frem­ur. „Þorsk­ur­inn og loðnan eru þeir stofnar sem hafa skýrt mesta breyti­leik­ann í útflutn­ings­verð­mæti sjáv­ar­af­urða síð­ustu 10 ár. Á allra síð­ustu árum hefur útflutn­ings­verð­mæti loðnu skýrt stóran hluta af breyti­leik­anum í heild­ar­út­flutn­ings­verð­mæt­inu. Áhrifin voru jákvæð árin 2010-2013 en síðan komu til veru­lega nei­kvæð áhrif árið 2014 vegna lít­illa veiða. Á síð­ustu árum hafa áhrifin verið tölu­vert minni hvað útflutn­ing á þorski snert­ir. Það helg­ast bæði af því að hlut­falls­legar breyt­ingar í veiðum eru tölu­vert minni en í loðnu en einnig eru öfgarnar í verðbreyt­ingum tölu­vert minni. Áhrifin af þorski hafa þó verið lít­il­lega jákvæð öll árin frá 2011 sem helg­ast bæði af hækkun verðs en einnig meiri veið­u­m.“

Stofn­inn ekki sterk­ari um ára­tuga skeið

Haf­rann­sókn­ar­stofnun kynnti þann 11. júní síð­ast­lið­inn nýja skýrslu um ástand nytja­stofna á Íslands­mið­um. Í skýrsl­unni er lagt til að þorsk­kvóti verði auk­inn um tíu pró­sent milli ára, í 239 þús­und tonn. Er þetta hæsta afla­mark þorsks frá því um alda­mót og nær tvö­falt meiri en árið 2008. Haft var eftir Jóhanni Sig­ur­jóns­syni, for­stjóra Haf­rann­sókn­ar­stofn­un­ar, í fréttum RÚV að stofnin hafi ekki verið sterk­ari um margra ára­tuga skeið og sé það afrakstur skyn­sam­legrar fisk­veiði­stefnu. „Með sam­drætti í sókn þá hefur tek­ist að breyta ald­urs­sam­setn­ingu stofns­ins, hann er orð­inn allur sterk­ari og lík­legri til að geta af sér sterka árganga í fram­tíð­inni. Sem er for­senda þess að hægt verði að von­ast eftir áfram­hald­andi aukn­ingu afla,“ sagði Jóhann. „Þetta er eig­in­lega bara næstum skóla­bók­ar­dæmi um það hvernig er hægt með mark­vissum fisk­vernd­ar­að­gerðum að ná árangri.“



htt­p://www.ruv.is/frett/t­horsk­stofn­inn-ekki-­sterk­ari-i-­ara­tugi

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None