Bann Rússa er líklegast án undantekninga og tekur gildi strax

haukur_thor_hauksson.jpg
Auglýsing

Flest bendir til þess að inn­flutn­ings­bann Rússa á mat­vörum frá Íslandi taki gildi strax og sé án und­an­tekn­inga hvað varðar inn­flutn­ing á mak­ríl eða öðrum afurð­um. Verið er að kanna hvort bannið gildi um þær vörur sem eru á leið yfir hafið í dag. Þetta virð­ist vera stað­an, segir Haukur Þór Hauks­son, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Sam­taka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS), í sam­tali við Kjarn­ann.

Sendi­ráð Íslands í Rúss­landi vís­aði fyr­ir­spurnum til utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins þegar Kjarn­inn hafði sam­band.

Auglýsing


Dmi­try Med­vedev, for­sæt­is­ráð­herra Rúss­lands, til­kynnti í morgun að Ísland hafi ver­ið bætt við á lista yfir lönd þaðan sem bannað er að flytja inn mat­vörur frá. Íslandi hefur þar með verið bætt á lista með Evr­ópu­sam­bands­lönd­um, Banda­ríkj­unum og Ástr­alíu en þessi lönd standa saman að við­skipta­þving­unum gagn­vart Rúss­landi vegna átak­anna í Úkra­ínu.



Enn liggur ekki nákvæm­lega fyrir hversu víð­tækt inn­flutn­ings­bannið er gagn­vart Íslandi. Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra, sagði í sam­tali við Kjarn­ann að ráðu­neyt­inu hafi ekki borist neinar upp­lýs­ingar og væntir upp­lýs­inga um málið síðar í dag.

Mik­il­vægur mark­aður

Rúss­land er stærsti upp­sjáv­ar­fisk­mark­aður íslenskra sjáv­ar­út­flutn­ings­fyr­ir­tækja og áætlar SFS að við eðli­legar aðstæður hefði virði útflutn­ings á sjáv­ar­af­urðum til Rúss­lands numið um 37 millj­örðum króna á þessu ári. Mestu munar um útflutn­ing til Rúss­lands á loðnu og mak­ríl. Áætlað virði útflutn­ings á þessum tveimur fisk­teg­undum er um 23,3 millj­arðar króna árið 2015, miðað við eðli­legar aðstæð­ur. Haukur Þór segir þetta sér­stak­lega baga­legt í ljósi nýlegrar athug­unar Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar sem sýndi að aldrei hefur meiri mak­ríll verið í lög­sögu Íslands.



Virði útflutn­ings sjáv­ar­út­vegs­af­urða til Rúss­lands í fyrra nam um 31 millj­arði króna, sam­kvæmt útreikn­ingum SFS. Er það nokkru hærra en tölur Hag­stof­unnar sýna, en SFS gerir ráð fyrir að 40 pró­sent af útfluttum sjáv­ar­af­urðum til Hollands fari áfram til Rúss­lands og 80% af útfluttum sjáv­ar­af­urðum til Lit­háen.

Taka ekki afstöðu en telja við­skipta­bann óvæn­legt

„Við höfum sagt að við ætl­umst ekki til að það verði gerðar breyt­ingar á utan­rík­is­stefnu Íslands. Póli­tíkin sér um það. En okkur finnst eðli­legra að málin séu rædd með löngum aðdrag­anda,“ segir Haukur Þór. Það er mat SFS að við­skipta­bönn séu ekki lík­leg til að leysa deilur á borð við Úkra­ínu­deil­una. Auk þess sé um að ræða inn­flutn­ing á mat­vöru sem ekki geti skaðað fólk og sé ætluð almenn­ingi.



Haukur Þór segir það taka langan tíma að finna og byggja upp nýja mark­aði fyrir upp­sjáv­ar­fisk­inn auk þess sem aðrir mark­aðir fyrir fisk­inn í Afr­íku borgi lægra verð. Það sé ekki létt verk að finna vör­unni nýjan far­veg og taki langan tíma.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None