Bjarni Ben: „Geta ekki endalaust allir fengið leiðréttingar“

14125321411_810106fac3_z.jpg
Auglýsing

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra segir að vinnu­mark­aðs­mód­elið á Íslandi sé gallað og að hruni kom­ið. Ítrekuð verk­föll og kröfur um leið­rétt­ingu launa sýni þetta. Þetta kom fram í svari Bjarna við fyr­ir­spurn frá Árna Páli Árna­syni, for­manni Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, um stöð­una á vinnu­mark­aði og verk­föll hjá hinu opin­bera.

Árni Páll benti á að verk­föll hefðu nú varað í um átta vikur hjá BHM og staðan í heil­brigð­is­geir­anum væri grafal­var­leg. Heil­brigð­is­stéttir væru að gef­ast upp.

Bjarni sagð­ist taka undir að ástandið væri víða mjög alvar­legt. Laun hjá hinu opin­bera hefðu hins vegar hækkað um sjö til átta pró­sent í fyrra á meðan verð­bólgan hafi hald­ist um eitt pró­sent. „Kaup­máttur launa í opin­bera geir­an­um, hann stórjókst á síð­asta ári, en því miður virð­ist það ekki vera nóg.“ Menn komi að samn­inga­borð­inu og seg­ist hafa dreg­ist aftur úr öðrum stéttum síð­asta ára­tug­inn og þurfi að fá leið­rétt­ingu á því.

Auglýsing

„Mitt svar við þessu er: það er ekki hægt að gera leið­rétt­ingar tíu ár aftur í tím­ann. Það geta ekki enda­laust allir fengið leið­rétt­ingar gagn­vart ein­hverjum öðrum við­mið­un­ar­hóp­um. Þetta er fyrir mig fyrst og fremst til vitnis um að vinnu­mark­aðs­mód­elið sem við erum að nota á Íslandi er gall­að. Það er í raun og veru að hruni kom­ið,“ sagði Bjarn­i. Hann sagði að Íslend­ingar þyrftu að færa sig nær nor­rænu vinnu­mark­aðs­mód­eli.

Bætti einni stétt upp geng­is­fell­ingu krón­unnar



Árni Páll spurði þá Bjarna hvort hann hefði velt því fyrir sér að „hinn eilífi sam­an­burður sem hann er að tala um er bein afleið­ing þess að fólk er búið að upp­lifa gríð­ar­lega kjara­skerð­ingu frá hruni og sú kjara­skerð­ing er til­komin vegna geng­is­falls íslensku krón­unnar og hækk­unar lána sam­hliða?“ Hann spurði hvort það gæti verið að þjóðin sé ekki reiðu­búin að lifa við afleið­ing­arnar af íslensku krón­unni.

Þá sagði Árni að Bjarni hefði bætt einni stétt geng­is­fell­ingu krón­unnar fyrir ára­mót og sú stétt hafi verið lækn­ar. „Það er ekki hægt að bæta einni stétt afleið­ingar íslensku krón­unn­ar. Það verður að axla ábyrgð af kjara­skerð­ing­unni fyrir aðra hópa,“ sagði hann og bætti því við að aðrar stéttir gætu líka sótt sér vinnu í öðrum lönd­um.

Bjarni svar­aði því til að það stæð­ist ekki skoðun að íslenska krónan væri sjálf­stætt vanda­mál. „Við höfum haft lága verð­bólgu og lækk­andi vexti og lær­dóm­ur­inn sem við eigum að draga núna er sá að ef við höldum áfram á þeirri braut en ætlum okkur ekki um of í ein­hverjum leið­rétt­ingum og kjara­bótum í gegnum taxta­hækk­anir eða nafn­launa­hækk­anir þá getum við notið enn lægri vaxta og við­var­andi lágrar verð­bólg­u,“ sagði hann. Það væri hins vegar eflaust spenn­andi „fyrir hina, sem vilja losna við íslensku krón­una, að hvetja til þess að laun verði hækkuð upp úr öllu valdi, svo fylgi verð­bólga og háir vextir vegna þess og þegar upp er staðið þá munu menn stíga fram og segja sjá­ið, þetta var allt íslensku krón­unni að kenna.“ Hann sagði það eina sem ógn­aði íslensku efna­hags­lífi hvað varð­aði verð­bólgu og vexti væri staðan á vinnu­mark­aði.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None