Bjarni Ólafsson, ritstjóri Viðskiptablaðsins, hefur verið sýknaður í meiðyrðamáli sem Róbert Wessman, forstjóri Alvogen, höfðaði gegn honum síðastliðið haust. Dómur í málinu var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun, en greint er frá málinu á vef Viðskiptablaðsins.
Róbert stefndi ritstjóranum vegna setningar á forsíðu blaðsins þann 28. ágúst síðastliðinn. Í fréttinni var greint frá því að Björgólfur Thor Björgólfsson hefði stefnt Róberti og kært til sérstaks saksóknara.
Orðrétt segir í niðurstöðu dómsins:
„Að mati dómsins var vinnsla umræddrar fréttar og framsetning hennar í blaðinu eðlileg þar sem sjónarmið stefnanda komu skýrlega fram, m.a. á forsíðu. Þá var umfjöllunin ekki hlutdræg eða í henni að finna sjálfstæða umfjöllun blaðamannsins er vann fréttina.“
Róbert Wessman var einnig dæmdur til að greiða Bjarna Ólafssyni eina og hálfa milljón í málskostnað, að því er kom fram í máli dómarans í dómsal. Í dómsorðinu sjálfu er hins vegar tiltekin mun hærri greiðsla, eða 1,5 milljarður króna. Þetta reyndist vera villa, sem komið var auga á eftir að dómurinn hafði verið kveðinn upp. Það var þremur núllum of mikið.