Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsmálaráðherra, vill skoða hvort ríkið eigi mögulega bótakröfu á slitabú Kaupþings í kjölfar dóms Hæstaréttar síðastliðinn fimmtudag. Seðlabanki Íslands lánaði Kaupþingi 500 milljónir evra í neyðarlán skömmu eftir að sá Al Thani snúningurinn, sem stjórnendur Kaupþings hafa nú verið dæmdir í fangelsi fyrir að framkvæma, var gerður. Tap íslenskra skattgreiðenda af þessari lánveitingu var um 35 milljarðar króna.Þetta kom fram í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag.
Í málinu voru Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Lúxemborg, og Ólafur Ólafsson, sem átti tæplega tíu prósent hlut í Kaupþingi fyrir fall hans, allir dæmdir sekir í. Hreiðar Már fékk fimm og hálfs árs fangelsi, Sigurður fjögur ár, Ólafur og Magnús fjögur og hálft ár.
Ræddu um upptöku að símtali Geirs og Davíðs
Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar, spurði Bjarna út í dóm Hæstaréttar og lánið sem Seðlabankinn veitti Kaupþingi. Hann spurði sérstaklega hvort ekki væri ástæða til að birta umdeilt símtal milli Geirs H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, og Davíðs Oddssonar, þáverandi formanns bankastjórnar Seðlabankans, þar sem lánveitingin til Kaupþings ákveðin.
Bjarni sagði að margir teldu að sú lánveiting yrði ekki að fullu upplýst nema að símtalið yrði birt. Bjarni væri hins vegar þeirrar skoðunar að það væri hægt að spyrja einfaldlega alla þá sem komu að ákvörðunartökunni um hvað hafi valdið henni, og að veðin sem veitt hafi verið fyrir láninu á þeim tíma hafi þótt býsna góð. Stjórnvöld hafi gert allt sem í þeirra valdi stóð til að bjarga íslensku efnahagskerfi.
Guðmundur benti á að búið væri að dæma mennina sem stjórnuðu bankanum sem fékk neyðarlánið í fangelsi fyrir það sem þeir voru að gera á sama tíma og Seðlabankinn lánaði þeim. Ljóst væri að verklagsreglur bankans hefðu verið brotnar. Guðmundur gaf ekki mikið fyrir þá málsvörn að allir hefðu verið að gera sitt besta og að dómur Hæstaréttar í Al Thani málinu væri dæmi um að það að gera sitt besta til að bjarga hlutunum sé alls ekki nóg.
Bjarni sagði að önnur ríki, þar á meðal Bandaríkin og Bretland, hafi ekki látið stífar verklagsreglur þvælast fyrir því í miðju bankahruninu að taka réttar ákvarðanir. Honum þyki það áleitnari spurning, í ljósi þess saknæmu háttsemi sem dómur Hæstaréttar í Al Thani málinu lýsir, hvort ríkið eigi bótakröfu á slitabú Kaupþings. Hann vill taka það til skoðunar.
Orðrétt sagði Bjarni: "Það sem mér finnst vera miklu áleitnari spurning vegna niðurstöðu Hæstaréttar á síðasta ári er sú spurning hvort með þeim saknæma hætti sem Hæstiréttur hefur nú fjallað um hafi stjórnvöldum verið gefið viðbótartilefni til að koma bankanum til bjargar sem gæti aftur leitt af sér mögulega bótakröfu ríkisins á hendur slitabúinu. Það er eitthvað sem ég held að við ættum að taka til skoðunar."