Lögsókn hóps fyrrum hluthafa í gamla Landsbankanum gegn Björgólfi Thor Björgólfssyni er gróðabrall lögmannanna sem fara með málið. Þetta segir Björgólfur í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í dag.
Í Kastljósi í gær kom fram að á næstu vikum verði Björgólfi sem fyrrum aðaleiganda bankans stefnt fyrir að dylja raunverulegt eignarhald sitt í bankanum svo hann þyrfti ekki að upplýsa um stórtæk lánaviðskipti sín við hann. Einnig fyrir að bregðast ekki við þegar yfirtökuskylda á bankanum myndaðist árið 2006. Hann hafi brugðist skyldu sinni að vernda lögbundin réttindi minni hluthafa í bankanum. Aðeins á að láta reyna á það fyrir dómi hvort bótaskylda sé fyrir hendi gagnvart hluthöfunum. Lesa má meira um málsóknina hér.
Björgólfur Thor segir að lögmennirnir hafi þegar borið háar þóknarnir úr býtum vegna málsins. „Af opinberum gögnum má sjá að lögmennirnir hyggjast til viðbótar við þegar heimtar þóknanir hafa af málsóknarfélaginu 25 milljón krónur í þóknanir fyrir að reka mál um viðurkenningu bótaskyldu. Þetta ætla þeir sér jafnvel þótt málið tapist. Þá fá þeir að auki 5.000 krónur greiddar frá félaginu fyrir hvern félagsmann. Að auki verða félagsmenn að greiða allan annan kostnað vegna málsins, til dæmis vegna vinnu sérfræðinga sem lögmennirnir kalla að málinu,“ segir Björgólfur í yfirlýsingu sinni. Lögmennirnir muni líka fá tíu prósent af dæmdum skaðabótum ef til þess kæmi að þær yrðu dæmdar. „Málið er því gróðabrall lögmannanna sem hagnast óháð niðurstöðu málsins.“
Björgólfur segir að lögmennirnir vilji því lokka til sín mikinn fjölda hluthafa og hafi mætt í Kastljós í auglýsingaskyni. Þar hafi þeir haldið fram „röngum, ófullnægjandi og villandi upplýsingum.“ Hann segir því ranglega hafa verið haldið fram að viðskipti Samsonar með hluti hafi verið málamyndagerningar sem ekki hafi verið efndir, og einnig ranglega haldið fram að Landsbankinn í Lúxemborg hafi verið eigandi hluta sem geymdir voru á vörslureikningi viðskiptavinar.
Björgólfur segist ætla að beina kvörtun til úrskurðarnefndar lögmanna vegna þess sem hann kallar „auglýsingaskrum“.
Þeir sem hæst hafa fría sig ábyrgð á kostnað almennra hluthafa
Björgólfur Thor segir einnig að ef honum verði dæmdur málskostnaður í málinu muni hann geta valið „hvaða félagsmann sem er og krafið hann um allan kostnaðinn“ vegna þess að félagar í málsóknarfélaginu beri óskipta ábyrgð. Auk þess beri málsóknarfélagið allan kostnað af málarekstrinum en fjárhagsleg ábyrgð félagsmanna nái enn lengra. „Leiði rangar ásakanir lögmanna í minn garð til tjóns bera félagsmenn óskipta ábyrgð á hugsanlegum bótum. Þeir sem hafa hæst í málinu fría sig þannig ábyrgð á kostnað almennra hluthafa.“
Yfirlýsing frá Björgólfi Thor Björgólfssyni:
Tugmilljóna kostnaður lagður á hluthafa
Kvörtun til Lögmannafélagsins vegna brots á siðareglum
Lögmenn í Reykjavík hafa stofnað málsóknarfélag um mál gegn mér. Lögmennirnir hafa um margra ára skeið velkst með málið, án þess að nokkuð markvert hafi komið fram. Lögmennirnir hafa borið háar þóknanir úr býtum.
Af opinberum gögnum má sjá að lögmennirnir hyggjast til viðbótar við þegar heimtar þóknanir hafa af málsóknarfélaginu 25 milljón krónur í þóknanir fyrir að reka mál um viðurkenningu bótaskyldu. Þetta ætla þeir sér jafnvel þótt málið tapist. Þá fá þeir að auki 5.000 krónur greiddar frá félaginu fyrir hvern félagsmann. Að auki verða félagsmenn að greiða allan annan kostnað vegna málsins, til dæmis vegna vinnu sérfræðinga sem lögmennirnir kalla að málinu. Þóknanir lögmanna og annar kostnaður við rekstur málsins mun því telja í milljónum tuga óháð niðurstöðu þess. Fái hluthafar skaðabætur dæmdar, sem mér virðist reyndar útilokað og verður ekki fjallað um í málinu sem nú á að höfða, ætla lögmennirnir sér 10% af dæmdum skaðabótum, ofan á allar þóknanir.
Málið er því gróðabrall lögmannanna sem hagnast óháð niðurstöðu málsins. Til að ganga í málsóknarfélagið þarf að greiða aðgangseyri, að lágmarki 5.000 krónur en stighækkandi eftir því hve marga hluti viðkomandi hluthafi átti.
Til að fá greiðslu þóknana sinna vilja lögmennirnir eðlilega lokka mikinn fjölda hluthafa til málsins. Því er e.t.v. ekki að undra að lögmennirnir séu tilbúnir að beita vafasömum meðölum.
Þeir freistuðust til að mæta í Kastljós í gærkvöldi í auglýsingaskyni þar sem þeir héldu fram röngum, ófullnægjandi og villandi upplýsingum. Þeir hafa, svo fátt eitt sé nefnt, ranglega haldið því fram að viðskipti Samsonar með hluti bankans hafi verið málamyndagerningar sem hafi aldrei verið efndir. Þá hafa þeir ranglega haldið því fram að Landsbankinn í Lúxemborg hafi verið eigandi hluta sem geymdir voru á vörslureikningi viðskiptavinar bankans. Þetta allt gera þeir til að lokka til sín viðskiptavini á röngum forsendum.
Þetta er óásættanlegt. Ætla má að þetta auglýsingaskrum lögmannanna brjóti í bága við 42. gr. siðareglna lögmanna. Ég hlýt að beina kvörtun vegna þessa til úrskurðarnefndar lögmanna.
Óskipt ábyrgð félagsmanna
Nái lögmennirnir fram vilja sínum og leggi mál fyrir dóm bera félagar málsóknarfélagsins óskipta ábyrgð á málinu gagnvart mér, samkvæmt samþykktum félagsins sjálfs. Verði mér dæmdur málskostnaður get ég því valið hvaða félagsmann sem er og krafið hann um allan kostnaðinn, ekki bara hlutdeild hans.
Þá bera félagsmenn óskipta ábyrgð á þóknun lögmannanna, 25 milljónum króna, auk alls annars kostnaðar við rekstur málsins sem getur talið í milljónum. Samningur við lögmenn gerir m.a. ráð fyrir kostnaði erlendis. Sá kostnaður er enn óskilgreindur, en félagsmenn bera samt óskipta ábyrgð á honum. Lögmennirnir geta krafið hvern og einn félagsmann um alla þóknun sína og allan kostnað af rekstri málsins, ekki bara hlutdeild hans.
En fjárhagsleg ábyrgð félagsmanna nær enn lengra en bara til kostnaðar við málareksturinn. Leiði rangar ásakanir lögmanna í minn garð til tjóns bera félagsmenn óskipta ábyrgð á hugsanlegum bótum. Þeir sem hafa hæst í málinu fría sig þannig ábyrgð á kostnað almennra hluthafa.
Björgólfur Thor Björgólfsson