Björgólfur Thor segir málsókn gegn honum vera gróðabrall lögmanna

Bjorgolfur_Thor_Bjorgolfsson_til_debatarrangenmentet_Thors_Saga_._hvordan_kommer_Island_videre.jpg
Auglýsing

Lög­sókn hóps fyrrum hlut­hafa í gamla Lands­bank­anum gegn Björgólfi Thor Björg­ólfs­syni er gróða­brall lög­mann­anna sem fara með mál­ið. Þetta segir Björgólfur í yfir­lýs­ingu sem hann sendi frá sér í dag.

Í Kast­ljósi í gær kom fram að á næstu vikum verði Björgólfi sem fyrrum aðal­eig­anda bank­ans stefnt fyrir að dylja raun­veru­legt eign­ar­hald sitt í bank­anum svo hann þyrfti ekki að upp­lýsa um stór­tæk lána­við­skipti sín við hann. Einnig fyrir að bregð­ast ekki við þegar yfir­töku­skylda á bank­anum mynd­að­ist árið 2006. Hann hafi brugð­ist skyldu sinni að vernda lög­bundin rétt­indi minni hlut­hafa í bank­an­um. Aðeins á að láta reyna á það fyrir dómi hvort bóta­skylda sé fyrir hendi gagn­vart hlut­höf­un­um. Lesa má meira um mál­sókn­ina hér. 

Björgólfur Thor segir að lög­menn­irnir hafi þegar borið háar þókn­arnir úr býtum vegna máls­ins. „Af opin­berum gögnum má sjá að lög­menn­irnir hyggj­ast til við­bótar við þegar heimtar þókn­anir hafa af mál­sókn­ar­fé­lag­inu 25 milljón krónur í þókn­anir fyrir að reka mál um við­ur­kenn­ingu bóta­skyldu. Þetta ætla þeir sér jafn­vel þótt málið tap­ist. Þá fá þeir að auki 5.000 krónur greiddar frá félag­inu fyrir hvern félags­mann. Að auki verða félags­menn að greiða allan annan kostnað vegna máls­ins, til dæmis vegna vinnu sér­fræð­inga sem lög­menn­irnir kalla að mál­in­u,“ segir Björgólfur í yfir­lýs­ingu sinni. Lög­menn­irnir muni líka fá tíu pró­sent af dæmdum skaða­bótum ef til þess kæmi að þær yrðu dæmd­ar. „Málið er því gróða­brall lög­mann­anna sem hagn­ast óháð nið­ur­stöðu máls­ins.“

Auglýsing

Björgólfur segir að lög­menn­irnir vilji því lokka til sín mik­inn fjölda hlut­hafa og hafi mætt í Kast­ljós í aug­lýs­inga­skyni. Þar hafi þeir haldið fram „röng­um, ófull­nægj­andi og vill­andi upp­lýs­ing­um.“ Hann segir því rang­lega hafa verið haldið fram að við­skipti Sam­sonar með hluti hafi verið mála­mynda­gern­ingar sem ekki hafi verið efnd­ir, og einnig rang­lega haldið fram að Lands­bank­inn í Lúx­em­borg hafi verið eig­andi hluta sem geymdir voru á vörslu­reikn­ingi við­skipta­vin­ar.

Björgólfur seg­ist ætla að beina kvörtun til úrskurð­ar­nefndar lög­manna vegna þess sem hann kallar „aug­lýs­inga­skrum“.

Þeir sem hæst hafa fría sig ábyrgð á kostnað almennra hlut­hafa



Björgólfur Thor segir einnig að ef honum verði dæmdur máls­kostn­aður í mál­inu muni hann geta valið „hvaða félags­mann sem er og krafið hann um allan kostn­að­inn“ vegna þess að félagar í mál­sókn­ar­fé­lag­inu beri óskipta ábyrgð. Auk þess beri mál­sókn­ar­fé­lagið allan kostnað af mála­rekstr­inum en fjár­hags­leg ábyrgð félags­manna nái enn lengra. „Leiði rangar ásak­anir lög­manna í minn garð til tjóns bera félags­menn óskipta ábyrgð á hugs­an­legum bót­um. Þeir sem hafa hæst í mál­inu fría sig þannig ábyrgð á kostnað almennra hlut­hafa.“

Yfir­lýs­ing frá Björgólfi Thor Björg­ólfs­syni:



Tug­millj­óna kostn­aður lagður á hlut­hafa



Kvörtun til Lög­manna­fé­lags­ins vegna brots á siða­reglum



Lög­menn í Reykja­vík hafa stofnað mál­sókn­ar­fé­lag um mál gegn mér. Lög­menn­irnir hafa um margra ára skeið velkst með mál­ið, án þess að nokkuð mark­vert hafi komið fram. Lög­menn­irnir hafa borið háar þókn­anir úr být­um.



Af opin­berum gögnum má sjá að lög­menn­irnir hyggj­ast til við­bótar við þegar heimtar þókn­anir hafa af mál­sókn­ar­fé­lag­inu 25 milljón krónur í þókn­anir fyrir að reka mál um við­ur­kenn­ingu bóta­skyldu. Þetta ætla þeir sér jafn­vel þótt málið tap­ist. Þá fá þeir að auki 5.000 krónur greiddar frá félag­inu fyrir hvern félags­mann. Að auki verða félags­menn að greiða allan annan kostnað vegna máls­ins, til dæmis vegna vinnu sér­fræð­inga sem lög­menn­irnir kalla að mál­inu. Þókn­anir lög­manna og annar kostn­aður við rekstur máls­ins mun því telja í millj­ónum tuga óháð nið­ur­stöðu þess. Fái hlut­hafar skaða­bætur dæmd­ar, sem mér virð­ist reyndar úti­lokað og verður ekki fjallað um í mál­inu sem nú á að höfða, ætla lög­menn­irnir sér 10% af dæmdum skaða­bót­um, ofan á allar þókn­an­ir.



Málið er því gróða­brall lög­mann­anna sem hagn­ast óháð nið­ur­stöðu máls­ins. Til að ganga í mál­sókn­ar­fé­lagið þarf að greiða aðgangs­eyri, að lág­marki 5.000 krónur en stig­hækk­andi eftir því hve marga hluti við­kom­andi hlut­hafi átti.



Til að fá greiðslu þókn­ana sinna vilja lög­menn­irnir eðli­lega lokka mik­inn fjölda hlut­hafa til máls­ins. Því er e.t.v. ekki að undra að lög­menn­irnir séu til­búnir að beita vafasömum með­öl­um.



Þeir freist­uð­ust til að mæta í Kast­ljós í gær­kvöldi í aug­lýs­inga­skyni þar sem þeir héldu fram röng­um, ófull­nægj­andi og vill­andi upp­lýs­ing­um. Þeir hafa, svo fátt eitt sé nefnt, rang­lega haldið því fram að við­skipti Sam­sonar með hluti bank­ans hafi verið mála­mynda­gern­ingar sem hafi aldrei verið efnd­ir. Þá hafa þeir rang­lega haldið því fram að Lands­bank­inn í Lúx­em­borg hafi verið eig­andi hluta sem geymdir voru á vörslu­reikn­ingi við­skipta­vinar bank­ans. Þetta allt gera þeir til að lokka til sín við­skipta­vini á röngum for­send­um.



Þetta er óásætt­an­legt. Ætla má að þetta aug­lýs­inga­skrum lög­mann­anna brjóti í bága við 42. gr. siða­reglna lög­manna. Ég hlýt að beina kvörtun vegna þessa til úrskurð­ar­nefndar lög­manna.



Óskipt ábyrgð félags­manna



Nái lög­menn­irnir fram vilja sínum og leggi mál fyrir dóm bera félagar mál­sókn­ar­fé­lags­ins óskipta ábyrgð á mál­inu gagn­vart mér, sam­kvæmt sam­þykktum félags­ins sjálfs. Verði mér dæmdur máls­kostn­aður get ég því valið hvaða félags­mann sem er og krafið hann um allan kostn­að­inn, ekki bara hlut­deild hans.



Þá bera félags­menn óskipta ábyrgð á þóknun lög­mann­anna, 25 millj­ónum króna, auk alls ann­ars kostn­aðar við rekstur máls­ins sem getur talið í millj­ón­um. Samn­ingur við lög­menn gerir m.a. ráð fyrir kostn­aði erlend­is. Sá kostn­aður er enn óskil­greind­ur, en félags­menn bera samt óskipta ábyrgð á hon­um. Lög­menn­irnir geta krafið hvern og einn félags­mann um alla þóknun sína og allan kostnað af rekstri máls­ins, ekki bara hlut­deild hans.



En fjár­hags­leg ábyrgð félags­manna nær enn lengra en bara til kostn­aðar við mála­rekst­ur­inn. Leiði rangar ásak­anir lög­manna í minn garð til tjóns bera félags­menn óskipta ábyrgð á hugs­an­legum bót­um. Þeir sem hafa hæst í mál­inu fría sig þannig ábyrgð á kostnað almennra hlut­hafa.



Björgólfur Thor Björg­ólfs­son

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None