Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra, var rekinn úr starfi sveitarstjóra Ásahrepps síðastliðinn föstudag. Hann varð uppvís að fjárdrætti í starfi sínu fyrir hreppinn, að því er fram kemur í Fréttablaðinu í dag. Hann var í sjötíu prósent starfi sem sveitarstjóri eftir að hafa verið ráðinn í starfið í júlí í fyrra.
„Þetta er leiðindamál sem kom blessunarlega mjög fljótt upp á yfirborðið,“ segir Egill Sigurðsson, oddviti Ásahrepps, í samtali við Fréttablaðið. „Líkt og flest sveitarfélög og fyrirtæki gera þá er það ekki sami maður sem bókar, samþykkir og greiðir. Það kerfi virkaði sem skyldi í þessu máli,“ segir Egill.
Egill segir í samtali við Fréttablaðið að upphæðin sem um ræðir nemi hundruðum þúsunda en sé undir milljón króna. Björgvin hafi haft til umráða greiðslukort frá sveitarfélaginu sem hann nýtti til persónulegra nota.
„Við getum sagt með nokkurri vissu að þetta hafi hafist í októbermánuði í fyrra. Fyrst með litlum greiðslum hér og þar, en vatt upp á sig líkt og snjóbolti sem rúllar niður brekku,“ segir Egill.
Á árunum 2007 til 2009 var hann viðskiptaráðherra. Hann var þingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi um tíu ára skeið, frá 2003 til 2013 og er enn varaþingmaður fyrir Samfylkinguna.
„Björgvin á inni hjá okkur hálfsmánaðarlaun auk uppsafnaðs orlofs. Því verður skuldajafnað og svo verður staðan tekin í kjölfarið,“ segir Egill en hann á von á því að málið verið gert upp að fullu um næstu mánaðarmót, að því er fram kemur í Fréttablaðinu.
Björgvin starfar nú sem annar tveggja ritstjóra vefsíðunnar Herðubreiðar.