Björgvin G. rekinn úr starfi sveitarstjóra - dró sér fé

bjorgvin_g_sigur_sson.jpg
Auglýsing

Björg­vin G. Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi við­skipta­ráð­herra, var rek­inn úr starfi sveit­ar­stjóra Ása­hrepps síð­ast­lið­inn föstu­dag. Hann varð upp­vís að fjár­drætti í starfi sínu fyrir hrepp­inn, að því er fram kemur í Frétta­blað­inu í dag. Hann var í sjö­tíu pró­sent starfi sem sveit­ar­stjóri eftir að hafa verið ráð­inn í starfið í júlí í fyrra.

„Þetta er leið­inda­mál sem kom bless­un­ar­lega mjög fljótt upp á yfir­borð­ið,“ segir Egill Sig­urðs­son, odd­viti Ása­hrepps, í sam­tali við Frétta­blaðið. „Líkt og flest sveit­ar­fé­lög og fyr­ir­tæki gera þá er það ekki sami maður sem bók­ar, sam­þykkir og greið­ir. Það kerfi virk­aði sem skyldi í þessu máli,“ segir Egill.

Egill segir í sam­tali við Frétta­blaðið að upp­hæðin sem um ræð­ir ­nemi hund­ruðum þús­unda en sé undir milljón króna. Björg­vin hafi haft til umráða greiðslu­kort frá sveit­ar­fé­lag­inu sem hann nýtti til per­sónu­legra nota.

Auglýsing

„Við getum sagt með nokk­urri vissu að þetta hafi haf­ist í októ­ber­mán­uði í fyrra. Fyrst með litlum greiðslum hér og þar, en vatt upp á sig líkt og snjó­bolti sem rúllar niður brekku,“ segir Egill.

Á árunum 2007 til 2009 var hann við­skipta­ráð­herra. Hann var þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í Suð­ur­kjör­dæmi um tíu ára skeið, frá 2003 til 2013 og er enn vara­þing­maður fyrir Sam­fylk­ing­una.

„Björg­vin á inni hjá okkur hálfs­mán­að­ar­laun auk upp­safn­aðs orlofs. Því verður skulda­jafnað og svo verður staðan tekin í kjöl­far­ið,“ segir Egill en hann á von á því að málið verið gert upp að fullu um næstu mán­að­ar­mót, að því er fram kemur í Frétta­blað­inu.

Björg­vin starfar nú sem annar tveggja rit­stjóra vef­síð­unnar Herðu­breið­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None