Björn Ingi orðinn stjórnarformaður DV  

bjorninginota.jpg
Auglýsing

Ný stjórn DV ehf., sem á og rekur DV og DV.is, var kjörin á hlut­hafa­fundi sem hald­inn var á skrif­stofu mið­ils­ins í dag. Björn Ingi Hrafns­son tók þá við sem stjórn­ar­for­maður félags­ins. Auk hans voru Arnar Ægis­son, fram­kvæmda­stjóri Vef­pressunn­ar, og lög­mað­ur­inn Sig­ur­vin Ólafs­son kjörnir í þriggja manna stjórn. Vara­maður í stjórn verður Jakob Hrafns­son, bróðir Björns Inga.

Reynir Trausta­son, fyrrum rit­stjóri DV, og Jón Trausti Reyn­is­son, fyrrum fram­kvæmda­stjóri DV, mættu báðir á fund­inn, en þeir eru enn á meðal hlut­hafa í félag­inu. Auk þeirra mætti frá­far­andi stjórn.

Keypti um 70 pró­sent í DV



Pressan ehf., móð­ur­fé­lag Vef­pressunnar og vef­miðl­anna Pressunn­ar, Eyj­unnar og Bleikt, keypti um 70 pró­sent hlut í DV ehf. í nóv­em­ber. Í kjöl­farið var til­kynnt að Vef­pressan og DV myndu sam­ein­ast og að Björn Ingi Hrafns­son yrði útgef­andi allra miðla hins sam­ein­aða fyr­ir­tæk­is. Kaupin voru bundin sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins sem veitti Vef­press­unni und­an­þágu­heim­ild fyrir kaup­unum í síð­ustu viku. Eftir að sú heim­ild var veitt gátu félögin byrjað að sam­þætta verk­lag og þjón­ustu, meðal ann­ars aug­lýs­inga­sölu.

Björn Ingi Hrafnsson verður útgefandi og stjórnarformaður hins sameiginlega félags. Björn Ingi Hrafns­son verður útgef­andi og stjórn­ar­for­maður hins sam­eig­in­lega félags­.

Auglýsing

Und­an­þágu­heim­ildin sem um ræð­ir varðar bann við sam­runa fyr­ir­tækja á meðan hann er til umfjöll­unar hjá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu. Auk þess var sett hefð­bundið skil­yrði við und­an­þágu­heim­ild­ina, að ekki sé gripið til neinna aðgera sem gera það ómögu­legt að láta sam­runa fyr­ir­tækja ganga til baka, enda athugun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins ekki lok­ið.

Ekki upp­lýst um kaup­verð né fjár­mögnun



Björn Ingi hefur ekki viljað upp­lýsa um hvert kaup­verð hluts­ins í DV var né hvernig kaupin voru fjár­mögn­uð. Í svari við fyr­ir­spurn Kjarn­ans í nóv­em­ber sagði hann: „Kaup­verðið er trún­að­ar­mál. Og sömu­leiðis hvernig þau eru fjár­mögn­uð, en þetta er sam­vinnu­verk­efni með þeim sem áttu blað­ið.“

Vef­pressan keypti hlut­inn af hópi sem leiddur var af Þor­steini Guðn­a­syni, fyrrum stjórn­ar­for­manni DV.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None