Borgarstjóri: Breiðholt á að vera Breiðholt, ekki Brooklyn

14264665560-bcac87a6f1-k.jpg
Auglýsing

„Breið­holt á ekki að reyna að verða Brook­lyn, Breið­holt á að vera Breið­holt,“ segir Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík. Því var á dög­unum velt upp á vef­síðu Kjarn­ans, í bak­her­bergi, hvort Breið­holt gæti orðið eins konar Brook­lyn Reykja­vík­ur, það er haft sömu áhrif fyrir Reykja­vík fram­tíð­ar­innar og Brook­lyn hefur haft fyrir New York á und­an­förnum árum. Þar er nú heims­þekktur suðu­pottur mann­lífs og sköp­un­ar.

Dagur segir Breið­holtið vera magnað og gott hverfi, og að þró­unin þar þessa dag­ana sé mjög áhuga­verð fyrir borg­ina. „Á síð­ustu miss­erum höfum við verið að styðja við ýmis­legt skap­andi í Breið­holti. Höfum opnað FabLab sem er tækni­vædd þrí­vídd­ar­hönnun í Eddu­felli, Nýlista­safnið er komið í Völvu­fell, við höfum fengið marga fram­úr­skar­andi lista­menn til að skreyta stærslu hús­gafla borg­ar­inn­ar, einsog frægt er orð­ið. Auk þess höfum við skipað sér­stakan hverf­is­stjóra, tekið allar skóla­lóðir hverf­is­ins í gegn, efnt til verk­efnis um sí- og end­ur­mennt­un, farið í geð­rækt­ar­á­tak og svo fram­veg­is. Á næst­unni mun von­andi lík­ams­rækt­ar­stöð fara í bygg­ingu, ÍR hefur verið að gera ótrú­lega fína hluti í mörgum greinum og Leiknir mun spila í úrvals­deild næsta sum­ar. Þegar við horfum á það að fyrir eru flottir skólar og gott sam­fé­lag, FB er sterkur fram­halds­skóli, ekki síst í list­greinum - þá er ekk­ert skrýtið að allt þetta leiði af sér þróun þar sem ungu og skap­andi fólki fjölgar, ég gæti trúað að áhuga­verðir veit­inga­staðir eða kaffi­hús muni fylgja í kjöl­farið og hverfið þró­ast á jákvæðan og upp­byggi­legan hátt,“ segir Dag­ur.

Hann segir íbú­ana í hverf­inu vera svo sann­ar­lega til í að efla jákvæða þróun hverf­is­ins, það hafi marg­sýnt sig og borg­ar­yf­ir­völd hafi sér­stakan metnað til þess að ýta undir og vinna betur með áhuga íbú­ana. „En ég ítreka að ég vona að það verði á for­sendum lífs­gæð­anna og sér­stöðu Breið­holts­ins, frekar en að við eltum ein­hverja eina fyr­ir­mynd,“ segir Dag­ur.

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None