Borgaryfirvöld gera ráð fyrir færri starfsmönnum á leikskóla á næsta ári en í ár

A-hluti borgarsjóðs verður rekinn með 15,3 milljarða halla í ár og 6 milljarða halla á því næsta, en árið 2024 á afkoman að vera orðin jákvæð, með hagræðingu og leiðréttingu á framlögum ríkisins til velferðarmála, samkvæmt áætlunum borgarinnar.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Reykjavíkur.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Reykjavíkur.
Auglýsing

Reykja­vík­ur­borg sér fram á að rekstr­ar­halli A-hluta borg­ar­sjóðs, þess hluta sem rek­inn er fyrir skatt­tekj­ur, verði tæpir 15,3 millj­arðar króna á þessu ári og tæpir 6 millj­arða á því næsta. Árið 2024 sér borgin hins vegar fyrir sér að rekstr­ar­nið­ur­staðan A-hlut­ans verði orðin jákvæð, sam­kvæmt fjár­mála­stefnu og áætl­unum borg­ar­inn­ar.

Í áætl­unum borg­ar­inn­ar, sem kynntar voru með til­kynn­ingu til Kaup­hallar í morgun og voru til umræðu á borg­ar­stjórn­ar­fundi í dag, er gert ráð fyrir því að frá og með árinu 2024 hafi fram­lög rík­is­ins til mála­flokks fatl­aðs fólks verið leið­rétt sem nemi hluta af þeim halla sem þegar sé við að eiga, og að halli af þeim rekstri auk­ist ekki á næstu fimm árum.

Einnig eru lagðar eru fram áætl­anir um tölu­verða hag­ræð­ingu á ýmsum sviðum borg­ar­inn­ar, þar með talið eitt pró­sent árleg hag­ræð­ing­ar­krafa á launa­kostnað á nær öllum starfs­stöðvum borg­ar­innar á árunum 2023 til 2025, auk hag­ræð­ingar ann­ars rekstr­ar­kostn­að­ar.

Auglýsing

Auk þess­ara aðgerða boð­aði Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri, í kynn­ingu sinni í borg­ar­stjórn í dag, að aðgerðir til eins millj­arðs króna árlegrar hag­ræð­ingar til við­bótar yrðu lagðar fram áður en fjár­hags­á­ætl­anir borg­ar­innar verða teknar aftur til umræðu á fundi í borg­ar­stjórn í byrjun des­em­ber.

Gengið út frá því að færri starfi á leik­skólum á næsta ári en þessu

Sam­kvæmt áætl­unum borg­ar­innar nær hag­ræð­ing­ar­krafa næstu ára á launa­kostnað einnig til leik- og grunn­skóla borg­ar­inn­ar. Í fram­settum áætl­unum um rekstur skóla- og frí­stunda­sviðs er þannig gengið út frá því að starfs­mönnum á leik­skólum fækki um alls 75 á milli ára, úr 1.775 á þessu ári niður í 1.700 á því næsta, á sama tíma og verið er að gera áætl­anir um að fjölga leik­skóla­pláss­um.

Einnig er gengið út frá því að starfs­fólki grunn­skóla í borg­inni fækki um 41 á milli ára, úr 2.295 niður í 2.254 og þess er vænst í áætl­unum borg­ar­innar að fjöldi barna sem nýti sér þjón­ustu frí­stunda­heim­ila drag­ist saman um 22 á milli ára.

Áætlanir um fjölda starfsmanna hjá skóla- og frístundasviði borgarinnar. Tafla: Úr greinargerð borgarinnar með fjármálaáætlun.

Hildur Björns­dóttir odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins sagði í umræðum á fundi borg­ar­stjórnar í dag að þessar tölur vektu upp áhyggjur og ekki síður það að í áætl­unum borg­ar­innar væri ekki gengið út frá því að hlut­fall fag­mennt­aðra leik­skóla­kenn­ara hækk­aði umfram það sem það er í dag.

Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn. Mynd: Bára Huld Beck

„Það verður auð­vitað að vera þannig að áætl­anir borg­ar­innar þær verða að taka mið af þjón­ustu­þörf­inni. Við erum ekki að fara að stytta biðlista á leik­skólum eða frí­stunda­heim­ilum með því að fækka starfs­fólki og van­á­ætla pláss í áætl­un­um, það gengur ekki upp,“ sagði Hild­ur.

Gert ráð fyrir 3,4 millj­arða halla sem stefnir í 15,3 millj­arða

Þegar fjár­hags­á­ætlun borg­ar­innar fyrir árið 2022 var sam­þykkt undir lok síð­asta árs var gert ráð fyrir því að halli á A-hluta borg­ar­sjóðs yrði 3,4 millj­arðar á þessu ári, en nú er útlit fyrir 15,3 millj­arða halla sem áður seg­ir. Þetta segir borgin í til­kynn­ingu að skýrist „einkum af verð­bólgu og van­fjár­mögnun [rík­is­ins] á rekstri mála­flokks fatl­aðs fólks“.

Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknar. Mynd: Bára Huld Beck

„Vand­inn er mik­ill,“ sagði Einar Þor­steins­son for­maður borg­ar­ráðs og odd­viti Fram­sókn­ar­flokks í umræðum í borg­ar­stjórn í dag.

Hann sagði í ræðu sinni að honum hefði ekki grunað að staðan yrði svona þung er hann ákvað að fara í fram­boð fyrr á árinu, þrátt fyrir að honum hefði grunað að fjár­hags­staða sveit­ar­fé­laga væri þröng.

Hvatti hann borg­ar­full­trúa til þess að vinna saman að úrlausn mála. Sagði Einar þannig að horfa mætti með opnum huga á til­lögur sem bornar voru á borð af Hildi Björns­dóttur odd­vita sjálf­stæð­is­manna, bæði varð­andi breyt­ingar á rekstri Fjöl­skyldu- og hús­dýra­garðs­ins og útboð á rekstri bíla­stæða­húsa í eigu borg­ar­innar til einka­að­ila.

Í áætl­unum borg­ar­innar er gert ráð fyrir því að sam­an­lögð rekstr­ar­nið­ur­staða A- og B-hluta borg­ar­innar verði jákvæð um 8,1 millj­arð króna á næsta ári, og jákvæð um 15,4 millj­arða króna á árinu sem er að líða.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent