Breskur ráðherra þrýsti á íslenska ráðherra að hraða Icesave-greiðslum

icesavenota-1.png
Auglýsing

Andrea Leadsom, und­ir­ráð­herra fyrir efna­hags­mál í breska fjár­mála­ráðu­neyt­inu, seg­ist hafa þrýst á íslenska ráð­herra að hraða end­ur­greiðslu á fé breskra skatt­greið­enda sem þeir áttu inni hjá þrota­búi gamla Lands­bank­ans. Hún stað­festi í gær að bresk stjórn­völd hefðu fengið rúm­lega 257 millj­arða króna greidda úr þrota­bú­inu, en krafa þeirra er til­komin vegna greiðslu þeirra á inn­stæðu­trygg­ingu til þeirra Breta sem áttu fé á Ices­a­ve-­reikn­ingum Lands­bank­ans fyrir hrun.

Þrotabú gamla Lands­bank­ans fékk und­an­þágu frá Seðla­banka Íslands í byrjun des­em­ber til að greiða út um 400 millj­arða króna for­gangs­kröfur út úr búinu. Þær greiðslur voru fram­kvæmdar í vik­unni og þorri þeirra rann til breska rík­is­ins. Það hefur nú fengið um 85 pró­sent af kröfum sínum í þrotabú Lands­bank­ans greidd­ar. Búið telur sig eiga um 218 millj­arða króna umfram for­gangs­kröfur og því ljóst að allar Ices­a­ve-­kröfur í bú þess ættu að greið­ast.

Þrýsti á ráð­herra að hraða end­ur­greiðslum



Greint er frá end­ur­greiðsl­unni á vef breska fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins. Þar er haft eftir Leadsom að hún hafi „þrýst á ráð­herra á Íslandi að hraða end­ur­greiðslum á fé í eigu breskra skatt­greið­enda. Þess vegna er það mjög ánægju­legt að við höfum tekið við frekari, og umtals­verðri, greiðslu frá þrota­búi Lands­bank­ans, sem starf­rækti Ices­ave í Bret­landi. Þessi greiðsla þýðir að við höfum nú fengið 85 pró­sent af heild­ar­kröfum okkar vegna falls Ices­a­ve“.

Andrea Leadsom. Andrea Leadsom.

Auglýsing

Leadsom sagði enn­frem­ur: „Fall íslenskra banka kost­aði skatt­greið­endur millj­arða punda, án þess að nokkur vissa væri fyrir því að fá þá pen­inga til baka. Við erum áfram ákveðin í að ná allri þeirri útistand­andi upp­hæð sem er í eigu breskra skatt­greið­enda  til baka frá þrota­búi Lands­bank­ans, og munum halda áfram að vinna að því að láta það verða að veru­leika sem allra fyrst.“

Hol­lend­ingar seldu kröfu til vog­un­ar­sjóða



Ices­a­ve-­reikn­ingar Lands­bank­ans voru líka starf­ræktir í Hollandi og því var hol­lenski seðla­bank­inn líka stór kröfu­hafi í þrotabú Lands­bank­ans, enda greiddi hann líka út inn­stæðu­trygg­ingu til hol­lenskra við­skipta­vina Ices­a­ve. Hol­lenski Seðla­bank­inn til­kynnti hins vegar í ágúst að hann hefði selt eft­ir­stöðvar kröfu sinnar áfram til þýska bankaris­ans Deutsche Bank.

Kjarn­inn greindi svo frá því að Deutche Bank hefði selt kröf­una áfram, aðal­lega til hóps vog­un­ar­sjóða sem eiga mikið af kröfum á fallna íslenska banka. Á meðal þeirra er Burlington Loan Mana­gement, stærsti ein­staki kröfu­hafi Ísland. Sjóð­ur­inn er í stýr­ingu Dav­id­son Kempner, eins stærsta vog­un­ar­sjóðs í heimi.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None