Störfum hjá ríkinu hefur fækkað um tæplega 11 prósent frá árinu 2008. Ef litið er aftur til aldammóta má sjá að starfsmönnum ríkisins hefur fjölgað um 5,6 prósent frá árinu 2000 á meðan fjöldi starfandi á vinnumarkaðnum hefur aukist um 11,8 prósent. Þetta kemur fram í tilkynningu frá BSRB, Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, þar sem fullyrðingum Viðskiptaráðs um þessi mál er vísað á bug. Á fundi ráðsins kom fram að ríkisstarfsmönnum hefði fjölgað um 29 prósent frá aldamótum. Tölur BSRB eru byggðar á upplýsingum frá Hagstofu Íslands og fjármálaráðuneytinu.
Í BSRB eru skráðir tæplega 22 þúsund félagsmenn.
Í tilkynningu BSRB segir enn fremur: „Ef fækkun starfsmanna ríkisins frá því í kringum efnahagshrunið er skoðuð má sjá að þeim hefur fækkað til muna. Árið 2008 var fjöldi stöðugilda hjá ríkinu alls 18.500 en árið 2014 voru þau orðin 16.600. Það er fækkun um 1900 stöðugildi eða um 10,6%. Þegar litið er aftur til aldamóta sést að meðalfjöldi stöðugilda hjá ríkinu árið 2000 var 15.700 samkvæmt upplýsingum frá Fjármálaráðuneytinu. Árið 2014 voru stöðugildin orðin 16.600 sem gerir um 5,6% frá aldamótum. Á sama tímabili hefur fjöldi starfandi á vinnumarkaði öllum aukist um 11,8% og fólksfjölgun í landinu hefur verið 16,7%. Fullyrðingar um gríðarlega fjölgun ríkisstarfsmanna frá aldamótum og að aðhaldsaðgerðir ríkisins frá efnahagshruni hafi lítil áhrif haft á fjölda ríkisstarfsmanna eru því með öllu ósannar. Staðreyndir málsins eru að ríkisstarfsmönnum hefur fækkað til muna á síðustu sex árum samhliða miklum niðurskurði á þeirri þjónustu sem ríkið kýs að veita íbúum landsins.“
BSRB segir að það sé skýr krafa að umræða um hagræðingu í rekstri ríkisins og skynsama ráðstöfun á fjárunum verði að byggja á staðreyndum en ekki fullyrðingum byggðum á rangfærslum, „sem virðast vera settar fram í þeim tilgangi að réttlæa frekari niðurskurð“.