Búið að greiða út 51 milljarð króna í skuldaleiðréttingu frá áramótum

IMG-0231-1.jpg
Auglýsing

Frá síð­ustu ára­mótum er rík­is­sjóður búinn að greiða lið­lega 51 millj­arð króna inn á verð­tryggð hús­næð­is­lán þeirra sem áttu rétt á að fá skulda­nið­ur­fell­ingu í Leið­rétt­ingu rík­is­stjórn­ar­inn­ar. Þetta kemur fram í frétt á vef fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins. Þar segir enn­fremur að alls verði 80 millj­örðum króna ráð­stafað vegna höf­uð­stólslækk­un­ar­inn­ar, þar af verði sex millj­örðum króna ráð­stafað í per­sónu­af­slátt í gegnum skatt­kerfið til þeirra sem áttu rétt á leið­rétt­ingu en eru í dag ekki með hús­næð­is­lán. Af þeim fjár­munum sem ráð­stafað er til fjár­mála­stofn­ana inn á höf­uð­stól verð­tryggðra lána verður 75 pró­sent greitt á þessu ári.

Síð­asti fjórð­ungur nið­ur­færslu verð­tryggðra lána úr rík­is­sjóði verður greiddur inn á höf­uð­stól þeirra lána sem falla undir Leið­rétt­ing­una í árs­byrjun 2016.

Skuldir lækka hratt



Í frétt ráðu­neyt­is­ins er einnig greint frá því að skuldir íslenskra heim­ila hafi lækkað hratt und­an­farin miss­eri. Þær séu nú jafnar því sem þær voru árið 2004 sem hlut­fall af lands­fram­leiðslu. Í árs­lok 2014 voru þær um 90,5 pró­sent af lands­fram­leiðslu og höfðu lækkað um tíu pró­sentu­stig á síð­asta ári.

Stærsti hluti skulda heim­ila eru íbúða­skuld­ir. Frá því að hægt var að sækja um skulda­nið­ur­fell­ingar úr rík­is­sjóði, um mitt ár 2014, hafa íbúða­skuldir sem hlut­fall af lands­fram­leiðslu lækkað úr 72 pró­sent í 65 pró­sent. Vert er að taka fram að greiðsla inn á höf­uð­stól þeirra lána sem féllu undir Leið­rétt­ing­una hófust ekki fyrr en á þessu ári.

Auglýsing

Í frétt­inni segir að skuldir heim­ila hafi lækkað mun hraðar hér en í flestum nágranna­löndum okkar á und­an­förnu árum. "Um mitt ár 2009 var hlut­fall skulda heim­il­anna 126% af VLF. Þá var aðeins Dan­mörk með hærra skulda­hlut­fall af þeim löndum sem Ísland er gjarnan borið saman við (Bret­land, Dan­mörk, Holland, Írland, Nor­eg­ur, Sví­þjóð,Sviss og Kýp­ur).  Síðan þá hefur skulda­hlut­fallið lækkað um 38 pró­sentu­stig og af þessum sam­an­burð­ar­löndum hefur aðeins Írland náð svip­uðum árangri í lækkun skulda."

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None