Byko sektað um 650 milljónir fyrir brot á samkeppnislögum

byko-1.jpg
Auglýsing

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur lagt 650 milljón króna stjórn­valds­sekt á Nor­vik, móð­ur­fé­lag Byko, fyrir brot gegn sam­keppn­is­lögum og samn­ingnum um Evr­ópska efna­hags­svæðið vegna umfangs­mikil ólög­mæts sam­ráðs við gömlu Húsa­smiðj­una. Í frétt á heima­síðu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins seg­ir: "Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur að brot Byko séu mjög alvar­leg og hafi verið framin af ásetn­ingi. Þau voru til þess fallin að valda hús­byggj­endum og almenn­ingi öllum umtals­verðu tjóni. Nánar er rök­stutt í ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins að hæfi­leg sekt vegna þessa sé 650 mkr. Til að stuðla m.a. að því að brot af þessu tagi verði ekki framin innan þeirrar sam­stæðu sem Byko til­heyrir er sektin lögð á móð­ur­fé­lag Byko, Nor­vík."

Í frétt­inn­i ­segir einnig að brot Byko hafi verið eft­ir­far­andi:



  • Reglu­bund­in, yfir­leitt viku­leg, sam­skipti við gömlu Húsa­smiðj­una um verð, birgða­stöðu o.fl. í því skyni að hækka verð/vinna gegn verð­lækk­unum á svo­nefndum gróf­vörum (gróf­vörur eru t.d. timb­ur, stein­ull og stál).


  • Sam­ráð við gömlu Húsa­smiðj­una um að hækka verð í öllum til­boðum á gróf­vöru í áföng­um.


  • Sam­ráð við gömlu Húsa­smiðj­una um að vinna gegn verð­sam­keppni í sölu á gagn­vörðu timbri (palla­efni) á aðal­sölu­tíma þeirrar vöru og reyna þess í stað að hækka verð.


  • Sam­ráð við gömlu Húsa­smiðj­una um að hækka verð á mið­stöðv­arofn­um.


  • Að hafa gert sam­eig­in­lega til­raun með gömlu Húsa­smiðj­unni til að fá Múr­búð­ina til að taka þátt í sam­ráði um verð á gróf­vöru og með því að hafa ákveðið með Byko að fylgj­ast með aðgerðum Múr­búð­ar­innar á mark­aðn­um.




Hægt er að lesa nán­ari sam­an­tekt á brotum Byko hér.

Stein­ull þarf að borga 20 millj­ónir



Í ákvörðun sinni kemst Sam­keppn­is­eft­ir­litið einnig að því að Stein­ull hf. hafi brotið gegn skil­yrðum í ákvörðun sam­keppn­is­ráðs með því að veita Húsa­smiðj­unni upp­lýs­ingar um við­skipta­kjör Múr­búð­ar­inn­ar, sam­keppn­is­að­ila á mark­aði. Stein­ull á Stein­ull­ar­verk­smiðj­una, sem er í eigu Byko, Húsa­smiðj­unnar og Kaup­fé­lags Skag­firð­inga. ­Sam­keppn­is­eft­ir­litið taldi hæfi­legt að leggja 20 millj­óna króna ­stjórn­valds­sekt á Stein­ull vegna þessa.

Í úrskurði eft­ir­lits­ins segir einnig: "Brot þessa máls tengj­ast ekki núver­andi rekstr­ar­að­ilum Húsa­smiðj­unn­ar. Rann­sókn á þætti Húsa­smiðj­unnar í mál­inu lauk í júlí á síð­asta ári. Með sátt, dags. 9. júlí 2014, við­ur­kenndi fyrrum rekstr­ar­að­ili Húsa­smiðj­unn­ar, Holta­vegur 10 ehf., að gamla Húsa­smiðjan hefði átt í ólög­mætu sam­ráði við Byko með þeim hætti sem lýst er í ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins sem gefin er út í dag. Þá var einnig við­ur­kennt að gamla Húsa­smiðjan hefði og brotið gegn fyrr­greindri ákvörðun sam­keppn­is­ráðs nr. 19/2002, m.a. með því að hafa beitt sér gagn­vart Stein­ull til að koma í veg fyrir að Múr­búðin fengi ákveðin við­skipta­kjör. Jafn­framt var stjórn­valds­sekt greidd vegna brot­anna. Þá gerði núver­andi rekstr­ar­að­ili Húsa­smiðj­unnar sátt við Sam­keppn­is­eft­ir­litið sama dag, þar sem Húsa­smiðjan skuld­batt sig til að grípa til aðgerða til að tryggja að umrædd brot end­ur­tækju sig ekki."

Auglýsing

Búið að áfrýja saka­mál­inu



Í apríl sýkn­aði Hér­aðs­dómur Reykja­víkur ell­efu af tólf sak­born­ingum í saka­máli sem emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara höfð­aði gegn ­starfs­mönnum Byko og Húsa­smiðj­unnar sýkn­að­ir. Sam­kvæmt frétt Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins hefur þeim dómi  verið áfrýjað til Hæsta­rétt­ar. Það saka­mál hefur ekki áhrif á nið­ur­stöðu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Sam­kvæmt yfir­liti yfir mann­afla- og tíma­skrán­ingu hjá sér­stökum sak­sókn­ara, vegna rann­sóknar emb­ætt­is­ins á meintu verð­sam­ráði Byko, Húsa­smiðj­unnar og Úlfs­ins, komu 31 starfs­maður emb­ætt­is­ins að rann­sókn máls­ins. Sam­kvæmt skrán­ing­unni, sem lögð var fram fyrir dómi og Kjarn­inn hefur undir hönd­um, unnu starfs­menn­irnir að mál­inu í alls 11.854 vinnu­stund­ir. Þá er ótal­inn tíma­fjöld­inn sem fór í flutn­ing máls­ins fyrir Hér­aðs­dómi. Þá hefur Kjarn­inn óskað eftir sam­bæri­legum upp­lýs­ingum frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu, þar sem upp­haf máls­ins má rekja til. Ekk­ert svar hefur enn borist Kjarn­anum frá stofn­un­inni.

Alls tóku sextán starfs­menn sér­staks sak­sókn­ara þátt í úrvinnslu gagna og yfir­heyrslum við rann­sókn verð­sam­ráðs­máls­ins hjá emb­ætt­inu, sem voru lang mann­afls­frek­ustu liðir rann­sókn­ar­innar að því er fram kemur í yfir­liti emb­ætt­is­ins. Skrán­ingin gildir frá þeim tíma er málið barst emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara. Allir tólf sak­born­ingar máls­ins voru sýkn­að­ir, nema einn sem hlaut skil­orðs­bund­inn dóm.

90 millj­óna króna málsvarn­ar­laun lentu á rík­inu



Upp­haf­lega voru þrettán starfs­menn fyr­ir­tækj­anna ákærðir fyrir þátt sinn í hinu meinta verð­sam­ráði. Einni ákæru var vísað frá, og því stóðu tólf eftir sem tóku til varna fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­vík­ur. Dóm­ur­inn sýkn­aði alla sak­born­inga af sak­ar­giftum þann 9. apr­íl, fyrir utan fram­kvæmda­stjóra fag­sölu­sviðs ­Byko sem var sak­felldur fyrir hvatn­ingu til verð­sam­ráðs. Hann hlaut eins mán­aðar skil­orðs­bund­inn dóm til tveggja ára, en hann neit­aði sök fyrir dómi. En auk þessa dæmdi Hér­aðs­dómur íslenska ríkið til að greiða nær öll málsvarn­ar­laun sak­born­ing­anna, rúm­lega 90 millj­ónir króna.

Menn­irnir voru hand­teknir í mars 2011, og því hefur málið staðið yfir í rúm fjögur ár. Málið kom upp­runa­lega til efna­hags­brota­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu. Þann 1. sept­em­ber tók svo sér­stakur sak­sókn­ari við rann­sókn máls­ins þegar efna­hags­brota­deildin var sam­einuð emb­ætt­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None