Ding, ding, ding, Erna á þing – fyrir Miðflokkinn

Erna Bjarnadóttir tekur í dag sæti sem varaþingmaður Birgis Þórarinssonar. Við þetta stækkar þingflokkur Miðflokksins um 50 prósent, en Erna fylgdi Birgi ekki yfir í Sjálfstæðisflokkinn er hann ákvað að segja skilið við Miðflokkinn eftir kosningar.

Erna Bjarnadóttir er varaþingmaður Birgis Þórarinssonar. En þau eru í sitthvorum þingflokknum.
Erna Bjarnadóttir er varaþingmaður Birgis Þórarinssonar. En þau eru í sitthvorum þingflokknum.
Auglýsing

Erna Bjarna­dóttir tekur í dag sæti sem vara­þing­maður fyrir Birgi Þór­ar­ins­son, í fyrsta sinn á kjör­tíma­bil­inu. Það heyrir til nokk­urra tíð­inda, enda breyt­ist við þetta fjöldi sitj­andi þing­manna í Mið­flokki og Sjálf­stæð­is­flokki.

Mið­flokks­mönnum á þingi fjölgar úr tveimur í þrjá og þing­mönnum Sjálf­stæð­is­flokks fækkar úr 17 í 16.

Birgir var kjör­inn á þing fyrir Mið­flokk­inn í Suð­ur­kjör­dæmi í kosn­ing­unum í haust en ákvað skömmu síðar að segja skilið við flokk­inn. Erna var í 2. sæti á lista Mið­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi og var slag­orð henn­ar, „Ding, ding, ding, Erna á þing“, eitt af þeim eft­ir­minni­legri í kosn­inga­bar­áttu hausts­ins.

Birgir sagði við Morg­un­blaðið er hann til­kynnti um vista­skipti sín að Erna styddi ákvörðun hans. Óvissa var þó uppi um hvort Erna myndi fylgja Birgi yfir í þing­flokk Sjálf­stæð­is­flokks­ins, eða hvort vara­þing­mað­ur­inn myndi áfram verða í Mið­flokkn­um. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn bauð Ernu vel­komna í flokk­inn í til­kynn­ingu um vista­skipti Birg­is, en ekk­ert fékkst stað­fest frá Ernu sjálfri.

Erna greindi sjálf frá því í við­tali á Bylgj­unni þann 12. októ­ber að hún ætl­aði sér ekki að skipta um flokk. „Ég hef ekki skráð mig í Sjálf­­stæð­is­­flokk­inn og er ekki á leið­inni þang­að,“ sagði Erna, sem lýsti því yfir í sam­tal­inu að hún væri ekki ósátt við þá ákvörðun Birgis að skipta um þing­flokk svo skömmu eftir kosn­ing­ar.

Auglýsing

„Hún tjáði mér það að hún ætl­aði að koma með mér yfir. Hún hefur greini­lega skipt um skoðun og ég held að það sé partur af þeirri hörðu umræðu sem hefur verið í sam­fé­lag­inu og haft mikil áhrif á hana.“ sagði Birgir í sam­tali við Morg­un­út­varp Rásar 2 í kjöl­far­ið.

Í jan­ú­ar­mán­uði gagn­rýndi Erna Birgi fyrir að kalla sig ekki inn sem vara­mann á meðan hann tók þátt í fundi Evr­ópu­ráðs­þings­ins og sagð­ist hún á Face­book ekki hafa heyrt frá honum „hósta né stunu“ þrátt fyrir að hafa, ásamt fleirum, hlaupið úr sér „lifur og lungu til að mað­ur­inn kæm­ist á þing“.

Á vef Alþingis má í dag sjá á lista yfir sitj­andi aðal- og vara­þing­menn að Erna situr á þingi fyrir Mið­flokk­inn, en ekki Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Birgir hafði sam­band um helg­ina

Erna Bjarna­dóttir segir í sam­tali við Kjarn­ann að Birgir hafi haft sam­band við hana um helg­ina og sagt henni að hann hygð­ist kalla hana inn sem vara­þing­mann, en Birgir er erlendis þessa vik­una að störfum fyrir þing­ið.

„Ég átti ekki von á þessu,“ segir Erna og bætir við að það hafi „ekki verið venjan að kalla inn vara­þing­mann þegar menn færa sig á milli flokka“.

Hún segir að sam­skipti hennar og Birgis hafi verið vin­gjarn­leg og að henni þyki það drengi­legt af Birgi að hafa kallað hana inn sem vara­þing­mann sinn.

Nefndi Klaust­ur­málið sem rót­ina að vista­skipt­unum

Birgir greindi frá vista­skiptum sínum yfir í Sjálf­stæð­is­flokk­inn í grein sem hann rit­aði í Morg­un­blað­ið, en þar sagði að traust milli hans og for­ystu Mið­flokks­ins væri brost­ið.

„Þessi staða rekur rætur sínar allt aftur til hins svo­­kall­aða Klaust­­ur­­máls. Eins og kunn­ugt er gagn­rýndi ég málið opin­ber­­lega og við­brögð þeirra sem í hlut áttu. Ég gat þess jafn­­framt að ég óskaði engum þess að vera þol­andi eða ger­andi í máli sem skók þjóð­ina dögum saman og enn er minnst á í fjöl­mið­l­­um. Að baki standa fjöl­­skyldur sem hafa átt erfitt vegna máls­ins. Ég gagn­rýndi sam­­flokks­­menn mína sem í hlut áttu vegna þess að heil­indi við eigin sam­visku og sú ábyrgð að breyta rétt í þjón­­ustu við kjós­­endur er fyrsta skylda þing­­manna. Eftir gagn­rýni mína á Klaust­­ur­­málið naut ég aldrei fulls trausts innan hóps­ins og um tíma var bein­línis litið svo á að ég væri vanda­­mál­ið,“ skrif­aði Birgir í grein sinn­i.

Birgir sagði að við upp­­röðun á fram­­boðs­lista Mið­­flokks­ins fyrr á þessu ári hefði haf­ist skipu­lögð aðför gegn sér af hálfu áhrifa­­fólks innan flokks­ins. Mikið hafi verið á sig lagt, liðs­­auki kall­aður til, nýjar reglur settar og ýmsum brögðum beitt til að koma í veg fyrir að hann yrði odd­viti í Suð­­ur­­kjör­­dæmi.

„Mið­­flokk­­ur­inn beið afhroð í kosn­­ing­unum og er í erf­iðri stöðu. Margt fór úrskeiðis í kosn­­inga­bar­átt­unni og í aðdrag­anda henn­­ar. Mikið upp­­­bygg­ing­­ar­­starf bíður for­yst­unnar og flokks­­manna, en end­­ur­reisnin mun aldrei takast nema full sam­­staða og traust ríki milli manna. Ljóst má vera að slíkt traust ríkir ekki í minn garð eins og ég hef rak­ið. Það er full­­reynt. Einnig skal það sagt að flokks­­for­ystan hefur rofið traust mitt til henn­­ar. [...] Minni bar­áttu ætla ég að halda áfram innan raða Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins. Þar er góður mál­efna­­legur sam­hljómur og þar tel ég að kraftar mínir muni nýt­­ast best,“ skrif­aði Birgir einnig.

Fréttin hefur verið upp­færð með til­vitn­unum í Ernu Bjarna­dótt­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent