Drög að íslensku „Carlsberg-ákvæði“ komin frá innviðaráðherra

Tveir starfshópar um húsnæðismál hafa á undanförnum árum mælt með að sveitarfélög fái heimild til að gera kröfur um að ákveðið hlutfall íbúða á uppbyggingarreitum verði hagkvæmar íbúðir. Nú hefur innviðaráðherra lagt fram drög um slíkar breytingar.

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og formaður Framsóknarflokksins.
Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og formaður Framsóknarflokksins.
Auglýsing

Til stendur að inn­leiða svo­kallað „Carls­berg-á­kvæði“ að danskri fyr­ir­mynd inn í íslensk skipu­lags­lög, en ákvæðið veitir sveit­ar­fé­lögum heim­ild til þess að gera kröfu um að 25 pró­sent bygg­ing­ar­magns í nýju deiliskipu­lagi verði fyrir hag­kvæmar íbúð­ir, félags­legar íbúð­ir, eða aðrar leigu­í­búð­ir, óháð því hvort sveit­ar­fé­lag­ið, ríkið eða einka­að­ili á landið sem um ræð­ir.

Frum­varps­drög frá Sig­urði Inga Jóhanns­syni inn­við­a­ráð­herra um þetta efni hafa nú verið lögð fram í sam­ráðs­gátt stjórn­valda, en til­laga um að leiða þetta dansk-ætt­aða ákvæði inn í skipu­lags­lögin kom fram í vinnu átaks­hóps um aukið fram­boð á íbúðum og aðrar aðgerðir til að bæta stöðu á hús­næð­is­markaði sem Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra skip­aði undir lok árs 2018.

Svip­aður starfs­hópur um hús­næð­is­mark­að­inn var svo settur á fót í febr­úar á þessu ári og lagði til í skýrslu sinni, sem birt var í maí, að Carls­berg-á­kvæði yrði sett inn í lög­in.

Í skýrslu starfs­hóps­ins sagði að með auk­inni upp­bygg­ingu íbúð­ar­hús­næðis á þétt­ing­ar­reitum og landi sem er í eigu í ann­arra en sveit­ar­fé­laga þyrfti að „tryggja sveit­ar­fé­lög­unum heim­ildir varð­andi blöndun byggðar fyrir ólíka hópa þannig að þau geti upp­fyllt skyldur sínar sam­kvæmt lögum um hús­næð­is­mál“ og í því sam­bandi að „heim­ila sveit­ar­fé­lögum að skil­yrða að allt að 25% íbúða á heild­stæðum skipu­lags­reitum verði almennar íbúð­ir, félags­legar íbúðir eða aðrar leigu­í­búð­ir“.

Heim­ild, en ekki skylda

Laga­breyt­ingin sem lögð er til í drög­unum frá inn­við­a­ráð­herra er nokkuð ein­föld í grunn­inn og ein­ungis eitt nýtt ákvæði bæt­ist við lögin ef frum­varps­drögin ná fram að ganga. Það hljóðar svo:

„Heim­ild til að skil­yrða um 25 pró­sent íbúða á við­ráð­an­legu verði.

Sveit­ar­fé­lögum er heim­ilt að gera kröfu um það við gerð deiliskipu­lags að allt að 25 pró­sent nýrra íbúða bygg­inga­magns verði fyrir hag­kvæmar íbúð­ir, leigu­í­búðir og aðrar íbúðir sem njóta stuðn­ings ríkis og/eða sveit­ar­fé­laga.“

Auglýsing

Í grein­ar­gerð með frum­varps­drög­unum segir að mark­miði með mál­inu sé að „að­stoða sveit­ar­fé­lögin og hvetja þau til að skipu­leggja íbúð­ar­byggð þannig að gert sé ráð fyrir fjöl­breyttri byggð innan svæðis og stuðlað að því að lág­marki 25% af bygg­ing­ar­magni svæðis sam­kvæmt nýju deiliskipu­lagi verði fyrir hag­kvæmar íbúðir og aðrar íbúðir sem njóta ein­hvers­konar stuðn­ing stjórn­valda og er ætlað að leysa úr hús­næð­is­þörf tekju- og eigna­lægri hópa“.

Þar segir einnig að með því að heim­ila sveit­ar­fé­lögum að gera kröfu um allt að 25 pró­sent bygg­ing­ar­magns undir hag­kvæmar íbúðir á við­ráð­an­legu verði sé sveit­ar­fé­lögum gert kleift að kom­ast hjá því að semja sér­stak­lega um 25 pró­sent bygg­ing­ar­magn­ið, en þó er tekið fram að auð­vitað komi það ekki í veg fyrir að samið sé um enn meira eða ákveði þá lægra hlut­fall.

Góð reynsla í dönskum borgum

Í grein­ar­gerð með frum­varps­drög­unum er stutt­lega fjallað um reynslu Dana af ákvæð­inu, en það kom inn í danskan rétt árið 2015 með breyt­ingum á skipu­lags­lögum sem gerðar voru í því skyni að stuðla að bland­aðri byggð í land­inu.

„Í skýrslu danskra stjórn­valda frá 2021 um dönsku skipu­lags­lögin (Evalu­er­ing af plan­loven mv. 2021) kemur fram að reynsla af laga­breyt­ing­unni frá 2015 hafi verið jákvæð, sér­stak­lega á Kaup­manna­hafn­ar­svæð­inu og í Árós­um.

Þá var full­trúum Bolig og plan­styrel­sen í Dan­mörku ekki kunn­ugt um að komið hafi upp nokkur vanda­mál í tengslum við ákvæð­ið, svo sem kröfur um skaða­bætur né önnur vanda­mál,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Í umfjöllun inn­við­a­ráðu­neyt­is­ins um áhrif frum­varps­ins segir að það muni fyrst og fremst hafa áhrif á sveit­ar­fé­lög og fram­kvæmd­ar­að­ila, en á allan almenn­ing til lengri tíma, „með auk­inni fjöl­breytni á fast­eigna­mark­aði, leiða til stöðu­leika á mark­að­inum og tryggja fleirum þak yfir höf­uðið á við­ráð­an­legu verð­i“.

Einnig segir að frum­varpið muni auð­velda sveit­ar­fé­lögum að mæta þörfum ein­stakra hópa – og að telja megi ávinn­ing af frum­varp­inu „um­tals­verð­an“.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent