Dýrast að æfa hjá Breiðabliki en ódýrast hjá Þór

photo-27.jpg
Auglýsing

Verð­lags­eft­ir­lit ASÍ tók saman æfinga­gjöld í knatt­spyrnu hjá 16 fjöl­menn­ustu íþrótta­fé­lög­unum víðs­vegar um land­ið. Skoðun á gjöld­unum leiddi í ljóst að mestur væri mun­ur­inn 57 pró­sent. Þetta kemur fram á vef­síðu ASÍ. Æf­inga­gjöld eru oft stór útgjalda­liður hjá fjöl­skyldu­fólki.

Skoðuð var gjald­skrá hjá 4. og 6. flokki íþrótta­fé­lag­anna, að því er fram kemur á vef ASÍ. „Svo verð­lags­eft­ir­litið gæti borið gjald­skrána saman var fundið út mán­að­ar­gjald, þar sem félögin hafa ekki sam­ræmda upp­setn­ingu á gjald­skrá fyrir eitt ár í senn. Sum eru með árgjald, önnur ann­ar­gjöld og jafn­vel er búið að setja sölu á varn­ingi eða vinnu við mót inn í gjald­skrána,“ segir í frétt ASÍ.

4. flokkur



Borin var sam­an­ gjald­skrá fyrir 4. flokk eða 12 og 13 ára börn. Dýr­ast var að æfa hjá Breiða­bliki en þar kostar mán­uð­ur­inn 7.833 kr. eða 31.333 kr. fyrir 4 mán­uði. Ódýr­ast er að æfa hjá Þór á Akur­eyri en þar kostar mán­uð­ur­inn 5.000 kr. eða 20.000 kr. fyrir 4 mán­uði. „Verð­mun­ur­inn er 57% eða 11.333 kr,“ segir í frétt ASÍ.

6. flokkur



Verð­lags­eft­ir­litið bar einnig saman gjald­skrá fyrir 6. flokk eða 8 og 9 ára börn. Dýr­ast er að æfa hjá Breiða­bliki og Íþrótta­banda­lagi Akra­ness en þar kostar mán­uð­ur­inn 6.667 kr. eða 26.667 kr. fyrir 4 mán­uði. Ódýr­ast er að æfa hjá Íþrótta­fé­lag­inu Þór á Akur­eyri en þar kostar mán­uð­ur­inn 4.375 kr. eða 17.500 kr. Verð­mun­ur­inn er 52% eða 9.167 kr.

Sem dæmi um árgjald í 6. flokki á tíma­bil­inu 1.10.14-30.9.15 þá kostar árið hjá Stjörn­unni í Garðabæ 57.900 kr., hjá Haukum 69.000 kr. og Breiða­bliki 80.000 kr.  Árgjald fyrir 2014-2015 hjá 4. flokki kostar 80.000 hjá Fjölni, 62.000 kr. hjá KR og 88.000 kr. hjá ÍA.

Auglýsing

Tekið er fram að að­eins sé um að ræða verð­sam­an­burð og sú þjón­usta sem í boði er á æfingum íþrótta­fé­lag­anna er ekki met­in.  Það sama gildir um fjár­öflun og aðra nið­ur­greiðslu.

























































































































































































Knatt­spyrna haustið 2014



4. flokkur - haustönn 4 mán 6. flokkur - haustönn 4. mán
Knatt­spyrnu­fé­lag Akur­eyrar - KA             20.444             17.778
Íþrótta­fé­lagið Þór             20.000             17.500
Knatt­spyrnu­fé­lag Reykja­víkur - KR             20.667             19.333
Ung­menna­fé­lagið Stjarnan             21.967             19.300
Knatt­spyrnu­fé­lagið Fram             22.333             18.667
Knatt­spyrnu­fé­lagið Þróttur             22.500             18.933
Íþrótta­fé­lagið Grótta             22.600             22.600
Knatt­spyrnu­fé­lagið Haukar             24.000             23.000
Íþrótta­fé­lag Reykja­víkur - ÍR             21.600             18.600
Íþrótta­fé­lagið Fylkir             25.667             21.667
Fim­leika­fé­lag Hafna­fjarðar - FH             27.333             21.667
Knatt­spyrnu­fé­lagið Vík­ingur             26.667             21.667
Hand­knatt­leiks­fé­lag Kópa­vogs - HK             26.667             22.333
Ung­menna­fé­lagið Fjölnir             26.667             23.333
Ung­menna­fé­lagið Breiða­blik             31.333             26.667
Knatt­spyrnu­fé­lag ÍA             29.333             26.667
ódýr­ara fyrir kvk 6 fl. 15.000 kr. og fyrir 4 fl. 18.000 kr.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None