Eftirlitsstofnun EFTA skoðar framkvæmd Leiðréttingarinnar

sdgleidretting.jpg
Auglýsing

Eft­ir­lits­stofnun EFTA (ESA) fylgist með fram­kvæmd höf­uð­stólslækk­unar á verð­tryggðum lán­um, sem gengur undir nafn­inu Leið­rétt­ing­in, til að koma í veg fyrir að í henni muni fel­ast rík­is­að­stoð til banka. Þeir sem vænta þess að fá höf­uð­stólslækkun munu vænt­an­lega ekki fá að vita hversu há hún verður fyrr en um næstu mán­að­ar­mót, en til­kynnt hafði verið um það opin­ber­lega að slík vit­neskja myndi liggja fyrir í þess­ari viku.

Þetta kom fram á fundi efna­hags- og við­skipta­nefndar í morgun þar sem fjallað var um breyt­ing­ar­til­lögu á lögum um leið­rétt­ingu verð­tryggðra fast­eigna­lána sem sam­þykkt voru í vor. Breyt­ing­ar­til­lagan er lögð fram til að fjölga frá­drátt­ar­liðum við nið­ur­færslu hús­næð­is­lána. Með öðrum orðum er verið að fjölga þeim aðgerðum lána­stof­anna sem drag­ast frá end­an­legri upp­hæð hvers og eins.

Hagn­aður og tap



Ástæða þess að ESA fylgist með fram­kvæmd­inni er sú að mjög mis­mun­andi er hvort lán­veit­endur séu að hagn­ast nið­ur­greiðslu rík­is­sjóðs á höf­uð­stóli hús­næð­is­lána. Í lög­unum sem sam­þykkt voru í maí síð­ast­liðnum segir að miða skuli við „að hvorki skap­ist hagn­aður né tap hjá samn­ings­að­ila vegna greiðslu rík­is­sjóðs á leið­rétt­inga­hluta láns“.

Kjarn­inn greindi frá því fyrr í dag að ekki liggi fyrir sam­komu­lag við íslensku við­skipta­bank­ana um aðferð­ar­fræð­ina sem beita á við útreikn­inga á virði þeirra hús­næð­is­lána sem á að höf­uð­stólslækka sam­kvæmt leið­rétt­inga­á­formum rík­is­stjórn­ar­inn­ar. Ástæða þessa er sú að við­skipta­bank­arnir munu vænt­an­lega fá meira til baka af sumum lánum sínum vegna leið­rétt­ing­ar­innar en þeir gátu vænst ef hún hefði ekki orðið að veru­leika. Þeir eru því að „hagnast“ á fram­kvæmd­inn­i.  Sumir líf­eyr­is­sjóðir sem eru á fyrsta veð­rétti á lánum til sjóðs­fé­laga sína „tapa“ hins vegar á því að fá þau upp­greidd, þar sem þeim standa ekki til boða sam­bæri­legir fjár­fest­inga­mögu­leikar fyrir það fé sem þeir fá í stað­inn.

Auglýsing

Samn­ings­við­ræður  þeirra sem sjá um leið­rétt­ing­ar­á­formin við Lands­bank­ann, Íslands­banka og Arion banka standa þó enn yfir og unnið er að útreikn­ingum með það fyrir augum að lausn náist.

Frest­ast til mán­að­ar­móta



Tryggvi Þór Her­berts­son, verk­efna­stjóri leið­rétt­ing­ar­inn­ar, sagði í sam­tali við Kjarn­ann í byrjun októ­ber að 95 pró­sent þeirra sem sóttu um höf­uð­stólslækkun verð­tryggðra lána muni fá að vita hvort og þá hversu mikið þau munu fá um miðjan októ­ber. Í dag er 15. októ­ber.

Á fundi efna­hags- og við­skipta­nefndar í dag kom fram að upp­lýs­ingar um upp­hæð nið­ur­fell­ingar muni ekki líta dags­ins ljós fyrr en í fyrsta lagi um næstu mán­að­ar­mót.

Leið­rétt­ing verð­tryggðra hús­næð­is­lána snýst um að rík­is­sjóður greiðir allt að 80 millj­arða króna í nið­ur­færslur á verð­tryggðum hús­næð­is­lán­um. Til þess að eiga mögu­leika á leið­rétt­ingu þurfti fólk að sækja um og rann umsókn­ar­frestur út  1. Sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Alls bár­ust um 69 þús­und umsóknir áður en frest­ur­inn rann út. Á bak­við þær standa um 105 þús­und manns.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None