Einar K gagnrýndi „fúkyrðaflaum, uppnefni, svigurmæli og meiðandi ummæli“

15083981958_d822364e48_k-1.jpg
Auglýsing

„Það er ekk­ert að því að menn taki stórt upp í sig í ræðu­stóln­um, tali svo undan svíði, orðin úr ræðu­stólnum komi blóð­inu á hreyf­ingu, menn fari með him­in­skautum og kalli fram í af hnyttni þegar það á við. En slíkt á ekk­ert skylt við fúk­yrða­flaum, upp­nefni, svig­ur­mæli og meið­andi ummæli,“ sagð­i Einar K. Guð­finns­son, for­seti Alþing­is, í ræðu sinni við þing­lok í dag.

Einar tal­aði um störf þings­ins í vetur í ræðu sinni. Þingið var með allra lengstu þing­um, þing­fundir voru 147 og þing­funda­dag­arnir 126. Fasta­nefndir þings­ins héldu um 600 fundi. Þing­fund­ir, umræður og atkvæða­greiðslur stóðu í um 830 klukku­tíma, sem Einar segir miklu meira en gengur og ger­ist í nágranna­löndum okk­ar. Laga­frum­vörpin sem sam­þykkt voru í ár eru 105 og 22 álykt­anir voru sam­þykkt­ar.

Þá sagði hann dag­inn í dag vera sögu­legan vegna þess að hafta­frum­vörpin tvö voru sam­þykkt sem lög í dag. Þau segir Einar að séu mik­il­væg­asta og merkasta lög­gjöf þessa þings og þótt lengra væri leit­að. „Segja má að sam­þykkt lag­anna í dag marki þátta­skil. Þessi laga­setn­ing er ein­hver mik­il­væg­asta varðan á leið okkar til fram­tíðar út úr hinum miklu efna­hags­á­föllum sem hér dundu yfir. Nú getur þing og þjóð horft til nýrra verk­efna á kom­andi árum.“

Auglýsing

Einar gagn­rýndi líka þing­störfin og sagði þau ekki hafa gengið fyrir sig eins og hann hefði kos­ið. Hann lýsti yfir von­brigðum með að ekki hafi tek­ist að halda starfs­á­ætl­un.

Allir væru sam­mála um að það þyrfti að end­ur­skoða vinnu­brögðin á Alþingi og nú vildi hann taka þing­menn á orð­inu. Það væri mik­il­vægt að gera strax breyt­ingar og allir þing­menn þyrftu að líta sér nær. Það væru þó ekki aðeins þing­sköpin sem þyrfti að breyta heldur stjórn­mála­menn­ing­unni, „sem hvílir eins og farg á þing­in­u.“

Hann sagði mikið í húfi, því Alþingi sé æðsta stofnun lands­ins og þurfi að öðl­ast þann trausta sess í huga þjóð­ar­innar sem það verð­s­kuldi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None