Einungis tveir prestar sögðu að þeir myndu ekki gifta samkynhneigða í kirkju

15504223196_5a6ceff929_c.jpg
Auglýsing

Nán­ast allir prestar sem taka afstöðu til þess að gefa saman sam­kynja par í hjóna­band í kirkju segja að þeir myndu með glöðu geði gera slíkt. Þetta kemur fram í könnun sem Frétta­blaðið gerði á meðal 153 presta sem skráðir eru hjá Þjóð­kirkj­unni. Af þeim sem svör­uðu sögð­ust 108 prestar að þeir myndu gifta sam­kynja par í kirkju en tveir sögðu nei, þeir myndu ekki gera slíkt. Af þeim prestum sem svör­uðu vildu ell­efu ekki taka þátt í könn­un­inni og einn sagð­ist óákvæð­inn. Ekki náð­ist í 31 prest.

Hvor­ugur þeirra presta sem sögðu að þeir myndu ekki gefa saman sam­kyn­hneigða gerðu það undir nafn­i. ­Séra Geir Waage, sem oft hefur tjáð sig opin­ber­lega um kirkj­una og hjóna­vígslur sam­kyn­hneigðra, vils ekki svara spurn­ingu Frétta­blaðs­ins og sagði hana ein­fald­lega ekki á dag­skrá Þjóð­kirkj­unn­ar. „Á sínum tíma var þess­ari spurn­ing svarað á Presta­stefnu og síðan þá hefur ekk­ert breyst[...]Ég fær­ist undan því að tjá mig um þetta yfir­höf­uð, það er ekki tíma­bært. Þá verður að ræða þetta á allt öðrum for­sendum og ekki í því sam­hengi sem frétta­miðl­arnir setja málið fram. Prestur á ekki skyldur við aðra en sókn­ar­börn sín.“

Þegar 40 prestar lögðu fram til­lögu á presta­þingi árið 2007 um að prestum yrði heim­ilt að gefa saman sam­kyn­hneigt fólk var hún felld. Í kjöl­farið fjall­aði Kast­ljós um mál­ið. Á meðal við­mæl­enda þátt­ar­ins var Geir Waage sem sat fyrir svörum um þessa afstöðu kirkj­unn­ar. Hægt er að horfa á umfjöllun Kast­ljóss, og svör Geirs, hér að neð­an.

Auglýsing

 

https://www.youtu­be.com/watch?v=uMI­UCljK­Dx0#t=123

Opin­berir starfs­menn



Hið svo­kall­aða sam­visku­frelsi presta til að synja sam­kyn­hneigðum um hjú­skap­ar­vígslu í kirkju hefur verið mikið til umræðu und­an­far­ið. Þegar ný  hjú­skap­ar­lög voru sam­þykkt á Alþingi árið 2010 var þeim breytt með þeim hætti að þau ættu ekki lengur við um karl og kon­u. Í fyrstu grein lag­anna kemur fram að þau gildi um hjú­skap tveggja ein­stak­linga, óháð kyni. Nokkrir aðilar hafa leyfi til að stofna til lög­legs hjú­skap­ar. Þeir eru prestar og for­stöðu­menn skráðra trú­fé­laga sem hafa sér­staka vígslu­heim­ild sam­kvæmt lögum og borg­ara­legir vígslu­menn (sýslu­menn og lög­lærðir full­trúar þeirra).

For­svars­menn Þjóð­kirkj­unnar hafa hins vegar haft þá skoðun að prestar eigi að hafa sam­visku­frelsi til að ákveða hvort þeir vilji gifta sam­kyn­hneigða í kirkju. Þessi afstaða hefur nokkrum sinnum komið frá.

Þegar umræða um breyt­ingar á lögum um stað­festa sam­vist stóð sem hæst síðla árs 2007  lagði þáver­andi bisk­up, Karl Sig­ur­björns­son, fram til­lögu á Kirkju­þingi þar sem lögð var áhersla á að staðið yrði áfram við hefð­bundin skiln­ing Þjóð­kirkj­unnar á hjóna­band­inu og því var ekki gert ráð fyrir að sam­kyn­hneigðir ein­stak­lingar gætu gengið í hjóna­band.

Eft­ir­maður hans á bisk­ups­stóli, Agnes M. Sig­urð­ar­dótt­ir, hefur lýst því yfir opin­ber­lega að hún vilji að prestar hafi rétt til að neita að gifta sam­kyn­hneigða. Það gerði hún í við­tali við DV skömmu eftir að hún var kjörin árið 2012. Hún hefur ekki tjáð sig um málið und­an­far­ið. Krist­ján Valur Ing­ólfs­son, vígslu­biskup í Skál­holti og starf­andi bisk­up, sagði hins vegar í fréttum Stöðvar 2 í vik­unni að stjórn­ar­skráin veitti prestum frelsi til skoð­ana og sann­fær­ingar sem þeir gætu nýtt sér til að hafna því að gifta sam­kyn­hneigða.

Ólöf Nor­dal inn­an­rík­is­ráð­herra, en Þjóð­kirkjan heyrir undir hennar ráðu­neyti, er ósam­mála þess­ari túlkun bisk­upanna. Í svari við fyr­ir­spurn á Alþingi um málið í sept­em­ber sagði hún að rík­is­sjóður greiði : "laun presta þjóð­kirkj­unnar og njóta þeir rétt­inda og bera skyldur sem opin­berir starfs­menn[...]­Sem opin­berir starfs­menn mega prestar ekki mis­muna fólki á grund­velli kyn­hneigð­ar."

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None