Ellefu prósent vilja Ólaf Ragnar Grímsson áfram sem forseta - 21 prósent vilja Jón Gnarr

olafurragnar_jongnarr.jpg
Auglýsing

Sex af hverjum tíu vita ekki hvern þeir vilja sem næsta for­seta Íslands. Ell­efu pró­sent þjóð­ar­innar sem hefur myndað sér afstöðu gagn­vart spurn­ing­unni vilja Ólaf Ragnar Gríms­son áfram á for­seta­stóli en 21 pró­sent aðspurðra vilja fá Jón Gnarr í hann. Þetta kemur fram í nýjum þjóð­ar­púlsi Gallup sem RÚV greinir frá.

Þegar ein­ungis er tekið til­lit til þeirra sem tóku afstöðu til sér­staks fram­bjóð­enda þá kom í ljós að 21 pró­sent vill fá Jón Gnarr, fyrrum borg­ar­stjóra Reykja­vík­ur, sem næsta for­seta Íslands. Þá nefndu 17 pró­sent Katrínu Jak­obs­dótt­ur, for­mann Vinstri grænna, sem þann sem þeir vilja í emb­ætti for­seta Íslands. Mun fleiri nefndu nöfn þeirra tveggja en nafn Ólafs Ragn­ars Gríms­son­ar, sem mun hafa setið í for­seta­emb­ætti í 20 ár þegar kosið verður á næsta ári. Vert er að taka fram að bæði Jón og Katrín hafa gefið það út að þau sæk­ist ekki eftir því að verða næsti for­seti Íslands.

Jón gerði það afdrátt­ar­laust í pistli í Frétta­blað­inu í mars og sagði ástæð­una meðal ann­ars vera þá að hann vildi ekki standa and­spænis freka kall­in­um. Skömmu síðar sagði Katrín frá því í útvarps­þætt­inum Sprengisandi að hún sæi sig ekki fyrir sér í emb­ætti for­seta Íslands.

Auglýsing

Ýmis önnur nöfn voru nefnd í könnun Gallups. Um átta pró­sent þeirra sem tóku afstöðu vildu að Þóra Arn­órs­dótt­ir, sem er nýráðin rit­stjóri Kast­ljóss og bauð sig fram gegn Ólafi Ragn­ari árið 2012, verði næsti for­seti. Auk þess voru nefnd þau Ragna Árna­dóttir (sex pró­sent), Davíð Odds­son (þrjú pró­sent), Þór­ar­inn Eld­járn (tvö pró­sent) og Kristín Ing­ólfs­dóttir (tvö pró­sent). Alls nefndu 28 pró­sent aðspurðra önnur nöfn og þrjú pró­sent sögð­ust vilja "ein­hverja kon­u".

Gallup spurði í rúm­lega 1400 manns í net­könnun 19. júní til 1. júlí: Hvern myndir þú vilja sjá sem næsta for­seta Íslands? 55,5 pró­sent svör­uðu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None