Fjármála- og efnahagsráðherra, Bjarni Benediktsson, hefur auglýst embætti bankastjóra Seðlabanka Íslands laust til umsóknar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá efnahags- og fjármálaráðuneytinu.
Seðlabankastjóri stýrir Seðlabanka Íslands og ber ábyrgð á rekstri hans og fer með ákvörðunarvald í öllum málefnum hans sem ekki eru falin öðrum samkvæmt lögum um Seðlabanka Íslands. Már Guðmundsson er sem kunnugt er seðlabankastjóri.
„Fjármála- og efnahagsráðherra skipar seðlabankastjóra Seðlabanka Íslands til fimm ára í senn, sbr. 1. mgr. 23. gr. laga nr. 36/2001, um Seðlabanka Íslands, með síðari breytingum. Aðeins er hægt að skipa sama mann seðlabankastjóra tvisvar sinnum. Seðlabankastjóri skal fullnægja almennum starfsgengisskilyrðum skv. 6. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins,“ segir í tilkynningu frá efnahags- og fjármálaráðherra.
Auglýsingin er birt í Lögbirtingablaðinu og á starfatorgi, en jafnframt verður hún birt í dagblöðum. Umsóknarfrestur er til föstudagsins 27. júní 2014.
Fjármála- og efnahagsráðherra tilkynnti í febrúar sl. að endurskoðun laga um Seðlabanka Íslands stæði fyrir dyrum og var stofnaður starfshópur sem vinnur að því að leggja mat á æskilegar breytingar. Hópurinn hefur það að markmiði að treysta trúverðugleika og sjálfstæði bankans og traust á íslenskum efnahagsmálum, að því er segir í fréttatilkynningu frá efnahags- og fjármálaráðuneytinu.