Mannréttindadómstóll Evrópu kvað í morgun upp dóm í máli Erlu Hlynsdóttur gegn Íslandi og komst að þeirri niðurstöðu að brotið hefði verið gegn 10. grein mannréttindasáttmála Evrópu um tjáningarfrelsi og dæmdi íslenska ríkið til að greiða Erlu 1,2 milljónir króna vegna málsins.
Hæstiréttur Íslands dæmdi Erlu, sem þá var blaðamaður á DV, fyrir meiðyrði vegna ummæla sem höfð voru eftir viðmælanda í frétt um eiginkonu Guðmundar Jónssonar, kenndum við Byrgið, sem birt var í DV þann 31. ágúst 2007.
Í fréttinni sem Erla skrifaði í ágúst 2007 voru ýmis ummæli um Guðmund og eiginkonu hans höfð eftir tveimur viðmælendum. Eiginkona Guðmundar stefndi bæði viðmælendunum og Erlu fyrir meiðyrði og krafðist þess að fjórtán ummæli yrðu ómerkt.
Dæmd fyrir ummæli sem höfð voru eftir öðrum
Í febrúar 2010 dæmdi Hæstiréttur Erlu til að greiða eiginkonu Guðmundar 400 þúsund krónur í bætur vegna ummæla sem höfð voru eftir öðrum viðmælandanum, en hún var ein þeirra stúlkna sem Guðmundur hafði verið dæmdur fyrir að hafa kynferðismök við. Í raun var um hluta af ummælum að ræða, því í dómi Hæstaréttar var ummælum sem krafist var ómerkingar á skipt upp, og niðurlag ummælanna stríði gegn lögum. Ummælin sem um ræðir eru eftirfarandi: „… ekki við hæfi að sú sem veiðir fyrir hann vinni í grunnskóla.“
Viðmælendurnir höfnuðu því báðir að rétt hefði verið eftir þeim haft í grein Erlu og þar sem upptöku af samtali hennar við þá hafði verið fargað þótti Hæstarétti að ekki hefðu verið leiddar sönnur á því að ummælin hefðu verið höfð eftir viðmælendunum. Þess vegna dæmdi hann að Erla bæri skaðabótaábyrgð.
Hæstiréttur sagði að með þessum orðum hafi verið gefið til kynna að eiginkona Guðmundar hefði gerst sek um refsivert athæfi, sem væri ekki sannað. Viðmælendurnir höfnuðu því báðir að rétt hefði verið eftir þeim haft í grein Erlu og þar sem upptöku af samtali hennar við þá hafði verið fargað þótti Hæstarétti að ekki hefðu verið leiddar sönnur á því að ummælin hefðu verið höfð eftir viðmælendunum. Þess vegna dæmdi hann að Erla bæri skaðabótaábyrgð.
Þessari niðurstöðu vildi Erla og lögmaður hennar ekki una og kæru málið til Mannréttindadómstóls Evrópu, sem í morgun dæmdi henni í vil.
Erla og Björk unnu mál fyrir tveimur árum
Þetta er í annað sinn sem Erla fer með mál fyrir Mannréttindadómstólinn. Hún hafði verið dæmd fyrir meiðyrði í desember 2009 fyrir ummæli um eiganda nektardansstaðarins Strawberries sem hún hafði eftir viðmælanda. Íslenskir dómstólar gerðu Erlu persónulega ábyrga fyrir ummælum viðmælanda síns og dæmdu hana bótaskylda. Mannréttindadómstóll Evrópu komst hins vegar að þeirri niðurstöðu í júlí 2012 að með dómnum hefði verið brotið gegn 10. grein Mannréttindasáttmála Evrópu og dæmdi íslenska ríkið til að greiða Erlu skaðabætur.
Sama dag komst Mannréttindadómstólinn að sömu niðurstöðu í máli annarrar blaðakonu, Bjarkar Eiðsdóttur, sem dæmd hafði verið meiðyrði vegna ummæla sem höfð voru eftir viðmælanda. Niðurstaðan var sú sama utan þess að Björk fékk hærri bætur.