Erlendir fjárfestar versla enn meira af ríkisskuldabréfum

kauphoell.jpg
Auglýsing

Erlendir fjár­festar héldu áfram að kaupa inn­lend rík­is­skulda­bréf í síð­asta mán­uði. Í mán­uð­inum jókst eign þeirra á rík­is­skulda­bréfum um 18 millj­arða króna og nam eignin alls 186 millj­örðum króna um síð­ustu mán­að­ar­mót, sam­an­borið við um 168 millj­arða króna mán­uði fyrr. Þetta má sjá í mán­að­ar­legu mark­aðs­upp­lýs­inga­skjali Lána­mála rík­is­ins.

Helst eru erlendir fjár­festar áhuga­samir um löng óverð­tryggð rík­is­bréf, það eru flokkar sem eru á gjald­daga árin 2022, 2025 og 2031.

Auglýsing


Áhugi erlendra fjár­festa á skulda­bréfum íslenska rík­is­ins hefur auk­ist veru­lega á und­an­förnum mán­uð­um. Fjár­fest­ing þeirra upp á átján millj­arða í ágúst kemur til við­bótar við rúm­lega átta millj­arða króna kaup þeirra á skulda­bréfa­mark­aði yfir sum­ar­mán­uð­ina.



Vextir á Íslandi eru háir í sam­an­burði við mörg önnur ríki, gengi krón­unnar hefur verið stöðugt gagn­vart evru og í kjöl­far áætl­unar stjórn­valda um losun fjár­magns­hafta hafa erlend mats­fyr­ir­tæki hækkað láns­hæfi Íslands. Þetta hefur allt glætt áhuga erlendra aðila á að fjár­festa hér­lend­is.

Vaxt­ar­mun­ar­við­skiptin snúa aftur

Vaxt­ar­mun­ar­við­skipti voru afar vin­sæl hér­lendis fyrir hrun. Vaxta­kjör á Íslandi voru mun hærri en í flestum öðrum ríkjum og til lands­ins streymdu hund­ruðir millj­arða króna sem fjár­fest var í skulda­bréfum með háum vöxt­um. Þótt upp­hæð­irnar sem um ræðir í dag séu ekki í námunda við það sem þekkt­ist fyrir hrun, þá hafa stjórn­völd verið á varð­bergi. Í ágúst sagði Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra að vextir á Íslandi mættu ekki vera of háir í sam­an­burði við önnur lönd, eigi að koma í veg fyrir óeðli­lega mikið inn­flæði fjár­magns.



Við kynn­ingu ákvörð­unar pen­inga­stefnu­nefndar í ágúst um hækkun stýri­vaxta greindi Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri síðan frá því að bank­inn muni leggja skatt eða bind­ingu á vaxt­ar­mun­ar­við­skipti í fram­tíð­inni.  Þessum stýri­tækjum verður komið á áður en flæði fjár­magns verður frjálst án fjár­magns­hafta. Að sögn seðla­banka­stjóra mun þetta auka bit pen­inga­stefn­unnar en nákvæm útfærsla liggur ekki fyr­ir. Bolt­inn er hjá Seðla­bank­anum og búast má við fréttum af þessu á næstu mán­uð­um, sagði Már í ágúst.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None