Fjárfestingafélagið Eyrir Invest, Arle og meðfjárfestar hafa gengið frá samkomulagi um sölu á fyrirtækinu Fokker Technologies til bresku iðnaðarsamsteypunnar GKN plc. Söluverð er 706 milljónir evra, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Eyri. Upphæðin er jafnvirði um 105 milljarða króna. Á vefsíðu Eyris kemur fram að félagið átti 17 prósent hlut í Fokker fyrir söluna.
„Það er ánægjulegt að ljúka vel heppnaðri sölu á Fokker á þessum tímapunkti“, segir Örn Valdimarsson, framkvæmdastjóri eigna hjá Eyrir Invest, í tilkynningu. „Rekstur Fokker hefur gengið vel að undanförnu og framtíðarhorfur eru góðar. Stjórnendur og fjárfestar hafa aldrei misst sjónar á langtímamarkmiðum sínum fyrir félagið og þeim möguleikum sem í því fólust. Með sölu til GKN náum við okkar helstu markmiðum og við erum því afar sátt við árangurinn auk þess sem við teljum að salan nú sé mjög jákvæð fyrir félagið, hluthafa, starfsmenn og viðskiptavini.“ Áætlað er að salan á Fokker verði formlega að fullu frágengin eigi síðar en á fjórða ársfjórðungi að uppfylltum skilyrðum um upplýsingagjöf til hagsmunasamtaka starfsmanna og verkalýðsfélaga í Hollandi, og veittum heimildum frá stjórnvöldum í Bandaríkjunum og Evrópusambandinu.
Fokker er sérhæfður undirverktaki á sviði flugvélaframleiðslu. Fokker hannar, þróar og framleiðir íhluti, rafkerfi og lendingarbúnað fyrir marga af helstu flugvélaframleiðendum heims. Hjá fyrirtækinu starfa nærri 5000 manns, höfuðstöðvar Fokker eru í Hollandi en félagið rekur verksmiðjur og starfsstöðvar í Evrópu, Norður-Ameríku og Asíu. Velta Fokker árið 2014 nam 758 milljónum evra, að því er fram kemur í sölutilkynningunni.
Um Eyri segir í tilkynningunni að það sé alþjóðlegt fjárfestingarfélag sem leggi ríka áherslu á virka þátttöku í rekstri og stefnumörkun lykileigna sinna. Kjölfestueignir Eyris eru 29% hlutur í Marel og 17% hlutur í London Acquisition sem á og rekur iðnfyrirtækin Stork Technical Services og Fokker Technologies. Þá rekur Eyrir Invest sprotasjóðinn Eyrir Sprotar slhf. sem fjárfestir í spennandi sprotafyrirtækjum og styður þau til vaxtar.