Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur skipað þriggja manna starfshóp undir formennsku Eyþórs Arnalds til að skoða og greina rekstur Ríkisútvarpsins (RÚV) frá því að það var gert að opinberu hlutafélagi 1. apríl 2007. Markmið skoðunarinnar er að varpa ljósi á ástæður þess alvarlega rekstrarvanda sem RÚV glímir við. Hópurinn á að skila niðurstöðum eigi síðar en 26. júní næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu.
Fyrr í þessari viku var greint frá því að llugi hafi fallið frá áformum um frekari lækkun útvarpsgjaldsins á árinu 2016. Útvarpsgjaldið er helsta tekjulind RÚV. Hann hefur þegar tilkynnt þetta í þingflokki Sjálfstæðisflokksins og undirtökur þingmanna við þessum áformum voru misjafnar.
Mikið fjaðrafok var í kringum RÚV í lok síðasta árs eftir að tilkynnt var að fyrirtækið, sem er með tæpa sex milljarða króna í rekstrartekjur á þessu rekstrarári að meðtöldum auglýsingatekjum, myndi fá útvarspgjaldið óskert (áður hafði hluti þess verið notaður til annarra verkefna ríkissjóðs) en að það yrði lækkað. Árið 2014 var það 19.400 krónur á hvern greiðenda, en er 17.800 krónur í ár. Árið 2016 átti það að lækka enn frekar og verða 16.400 krónur. Stjórnendur RÚV sögðust einungis geta rekið RÚV og sinnt lögbundnu hlutverki þess ef fyrirtækið fengi útvarspgjaldið óskert og með því að selja eignir upp í skuldir. Hávær mótmæli urðu gegn því sem kallað var aðför að RÚV. Stjórnarmeirihlutinn stóð hins vegar fast á sínu og fjárlög voru samþykkt með lækkunina innanborðs. Nú hefur mennta- og menningarmálaráðherra hætt við að lækka útvarpsgjaldið frekar.