Félag atvinnurekenda (FA) hefur óskað eftir því bréflega að Sigurður Ingi Jóhannsson, landbúnaðarráðherra, rýmki fyrir kjötinnflutningi til að bregðast við yfirvofandi verkfalli dýralækna og mögulegum kjötskorti í kjölfarið. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem FA sendi fjölmiðlum í dag.
Í bréfi Ólafs Stephensen, framkvæmdastjóra FA til atvinnuvegaráðuneytisins er bent á að landúnaðarráðherra beri skylda til, samkvæmt búvörulögum, að gefa út opinn innflutningskvóta á lægri tollum, þegar framboð búvöru er ekki nægjanlegt á innanlandsmarkaði.
„Félag atvinnurekenda fer þess á leit við ráðuneytið að það kalli saman ráðgjafarnefnd um inn- og útflutning landbúnaðarafurða og nefndin undirbúi að gefa þegar í stað út opinn tollkvóta fyrir fjölbreytilegt úrval nauta-, alifugla- og svínakjöts, komi til verkfalls,“ segir í bréfinu.
Þar segir ennfremur: „Með skjótum viðbrögðum nefndarinnar og ráðherra má afstýra kjötskorti og tryggja fæðuöryggi landsmanna. Aðgerðaleysi stjórnvalda mun á hinn bóginn, að óbreyttu, valda skorti á nauðsynlegum matvælum, skerða lífsgæði og skaða allan almenning í landinu.“
Í frétt í Fréttablaðinu í dag er haft eftir Finni Árnasyni, forstjóra Haga, að ferskvara muni klárast á tveimur til þremur dögum í verkfalli og því stefni fljótt í kjötskort í verslunum, komi til verkfalls dýralækna en þá mun slátrun í landinu stöðvast.