Færri feður fara í fæðingarorlof nú en fyrir hrun

Baby-held-in-fathers-hand.jpg
Auglýsing

Hlut­fall feðra sem tekur fæð­ing­ar­or­lof hefur farið lækk­andi frá hruni og nú stefnir í að hlut­fall feðra sem tóku fæð­ing­ar­or­lof árið 2013, verði með því lægsta í yfir ára­tug. Frétta­blaðið greinir frá mál­inu á for­síðu blaðs­ins í dag.

Níu af hverjum tíu feðrum tóku fæð­ing­ar­or­lof árið 2009, en á síð­asta ári lítur út fyrir að hlut­fallið hafi lækkað um þrettán pró­sent og verði um 77 pró­sent. Í frétt Frétta­blaðs­ins er haft eftir Eygló Harð­ar­dóttur vel­ferð­ar­ráð­herra að ástand á vinnu­mark­aði gæti skýrt þró­un­ina, tekju­lágir feður séu hrædd­ari um störfin sín. Þá sé mik­il­vægt að aðilar vinnu­mark­að­ar­ins séu með í ráðum hvað þetta varði.

Kristín Ást­geirs­dóttir jafn­rétt­is­stýra segir að glögg­lega hafi mátt sjá breyt­ingar á fæð­ing­ar­or­lofi karla á síð­ustu árum, í sam­tali við Frétta­blað­ið. Þró­unin sé afleið­ing efna­hags­hruns­ins sem Ísland gekk í gegn­um. Hún telur eðli­legt að staldra við og íhuga hvað sé hægt að gera til að hækka hlut­fall karla sem taki fæð­ing­ar­or­lof, og vill sjá grein­ingu á því hvers konar feður taka ekki fæð­ing­ar­or­lof. Hún hefur áhyggjur af því að sá ávinn­ingur sem náð­ist með fæð­ing­ar­or­lof­inu sé að ein­hverju leyti að ganga til baka.

Auglýsing

Vel­ferð­ar­ráð­herra segir málið alvar­legt og vill fá breiða sátt um að bæta úr stöð­unni. „Fæð­ingum hefur fækkað og lægra hlut­fall feðra tekur fæð­ing­ar­or­lof. Ég hef sett á fót starfs­hóp um fram­tíð­ar­skipan fæð­ing­ar­or­lofs. Ég tel mik­il­vægt að bæta stöð­una. Fæð­ing­ar­or­lof á Íslandi er styttra en á hinum Norð­ur­lönd­un­um. Það sem skiptir máli er að aðilar vinnu­mark­að­ar­ins komi að borð­inu og þetta verði hluti af samn­inga­við­ræðum við nýja kjara­samn­inga eftir ára­mót,“ er haft eftir Eygló Harð­ar­dóttur í Frétta­blað­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None