Félag læknanema lýsir yfir vonbrigðum með gang samningaviðæðna ríkissáttasemjara, Læknafélags Íslands og Skurðlæknafélags Íslands. Þetta kemur fram í ályktun sem félagið sendi frá sér í kvöld. Þar skorar félagið á fjármála- og efnahagsráðuneytið að veita ríkissáttasemjara heimild til að mæta kröfum lækna áður en næsta verkfallslota skelli á.
Þá segir í ályktuninni að ljóst sé að kostnaður við verkfall lækna sé umtalsverður, bæði í peningum talið og eins þegar horft er til röskunar á meðferð sjúklinga. Þá hafi verkfallið haft áhrif á klíníska kennslu læknanema.
Ályktun Félags læknanema í heild sinni.
Félag læknanema lýsir yfir vonbrigðum vegna pattstöðu samningaviðræðna ríkissáttasemjara, Læknafélags Íslands og Skurðlæknafélags Íslands.
Á morgun hefst vika án verkfalls á Landspítalanum. Nú þegar hefur verkfall lækna staðið yfir í tvær vikur. Á þeim tíma hafa biðlistar lengst, þjónusta verið skert og sjúklingum gert að sitja heima. Ljóst er að kostnaður við fyrstu verkfallslotu lækna er umtalsverður, bæði í peningum talið og þegar horft er til röskunar á meðferð sjúklinga. Verkfallið hefur einnig haft áhrif á klíníska kennslu læknanema.
Enginn læknir vill vera í verkfalli. Læknar eiga hins vegar engra annarra kosta völ vegna óviðunandi og ósamkeppnishæfra grunnlauna sem ekki eru í samræmi við menntun, reynslu og eftirspurn eftir vinnu þeirra. Þar að auki hafa þeir ekki tök á að sinna starfi sínu á fullnægjandi hátt vegna núverandi aðstæðna. Þetta eru þingmenn meðvitaðir um. Þetta er heilbrigðisráðherra meðvitaður um. Það er hins vegar á ábyrgð fjármála- og efnahagsráðuneytisins að veita ríkissáttasemjara heimild til að mæta kröfum lækna og koma í veg fyrir áframhaldandi verkfall.
Við viljum öll geta starfað á Íslandi í framtíðinni. Nú er það á ábyrgð ríkissáttasemjara, og á ábyrgð fjármála- og efnahagsráðuneytisins, að gera okkur það mögulegt. Félag læknanema skorar því á fjármála- og efnahagsráðuneytið að veita ríkissáttasemjara heimild til að mæta kröfum Læknafélags Íslands og Skurðlæknafélags Íslands áður en næsta verkfallslota skellur á.