Ferðaþjónustan er í fyrsta skipti orðinn stærsti þjónustuliðurinn í bæði inn- og útflutningi, en afgangur af henni nemur 37,4 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi ársins 2014. Útflutningur hennar nam tæplega 67 milljörðum króna, og innflutningur 29,5 milljörðum króna. Afgangur vegna ferðaþjónustu nam röskum 27 milljörðum króna á sama ársfjórðungi í fyrra.
Þetta kemur fram í frétt frá Hagstofunni, um þjónustuviðskipti við útlönd á yfirstandandi ári.
Heildarútflutningur á þjónustu á þriðja ársfjórðungi var, samkvæmt bráðabirgðatölum, 173,3 milljarðar króna, en innflutningur á þjónustu 93,1 milljarður. Af þessum völdum var þjónustujöfnuður við útlönd því jákvæður um 80,2 milljarða króna á tímabilinu, en hann var jákvæður um 69,9 milljarða á sama tíma í fyrra á gengi hvors árs.
Í frétt Hagstofunnar kemur fram að mestur afgangur hafi orðið af samgöngu- og flutningaþjónustu eða 47,4 milljarðar króna. Útflutningur þeirra nam 64,9 milljörðum og innflutningur 17,5 milljörðum króna.
Önnur innflut viðskiptaþjónusta nam 27,5 milljörðum og útflutningur 10,3 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi. Halli var því mestur af þeirri þjónustu, eða 17,3 milljarðar króna.