Stjórnendur Fjarðalax og bæjaryfirvöld í Vesturbyggð komust í dag að samkomulagi um að uppsagnir fjórtán starfsmanna fyrirtækisins sem starfa við vinnslu og pökkun á Patreksfirði verði dregnar til baka. Starfsmönnunum var sagt upp í lok mars og áttu uppsagnirnar að taka gildi um síðustu mánaðarmót. Nú er ljóst að ekkert verður af þeim.
Í tilkynningu frá Fjarðalaxi vegna þessa er haft eftir Einari Erni Ólafssyni, framkvæmdastjóra fyrirtækisins, að það hyggist leita leiða með Vesturbyggð og öðrum hagsmunaraðilum á svæðinu til að vinna lausn sem tryggi varanlega vinnslu afurða þess á svæðinu.
Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar, fagnar þessu samkomulagi enda hafi uppsagnirnar komið verulega á óvart og verið mikið reiðarslag fyrir bæjarfélagið og viðkomandi starfsfólk, hefðu þær komið til framkvæmda.