Fjárfestingasamningur án hliðstæðu við fyrirtæki í samkeppni

Ragnheidur-elin-2.jpg
Auglýsing

Ragn­heiður Elín Árna­dótt­ir, iðn­að­ar­ráð­herra, kvaðst aðspurð í Kast­ljósi RÚV í kvöld ekki geta svarað því hvort nýgerður fjár­fest­inga­sam­ingur hennar fyrir hönd rík­is­ins við fisk­eld­is­fyr­ir­tækið Matorku eigi sér for­dæmi.

Matorka hyggst koma á fót 3000 tonna bleikju­eldi á Reykja­nesi, en félagið mun fá sam­kvæmt umfjöllun Kast­ljós­ins fá íviln­anir á bil­inu 35 til 60 pró­sent af fjár­fest­ingu þeirra í eld­inu. Fjallað var um fjár­fest­inga­samn­ing rík­is­ins við félagið í Við­skipta­blað­inu fyrir helgi.

Ríf­legar íviln­anir



Sam­kvæmt samn­ingnum fær félagið fær afslátt af fjölda skatta og gjalda. Tekju­skatts­pró­sentan verður 15 pró­sent, á meðan önnur fyr­ir­tæki greiða 20 pró­senta tekju­skatt. Þá fær félagið helm­ings­af­slátt af trygg­inga­gjald­inu og lög­bundnu hámarki fast­eigna­gjalda, und­an­þágur vegna greiðslu aðflutn­ings­gjalda, hag­stæð­ari fyrn­inga­regl­ur, íviln­anir vegna virð­is­auka­skatts af inn­flutn­ingi og sér­stakan þjálf­un­ar­styrk fyrir starfs­menn. Allar íviln­an­irnar eiga sér for­dæmi í fjár­fest­inga­samn­ingum rík­is­ins vegna stór­iðju, gagna­ver, kís­il­ver og önnur fyr­ir­tæki.

Hlut­fall íviln­anna af heild­ar­fjár­fest­ingu félags­ins, sem hyggur á sam­keppni við fjölda íslenskra fyr­ir­tækja sem fyrir eru í bleikju­eldi, hefur vakið athygli. Sam­kvæmt Við­skipta­blað­inu nemur það að lág­marki 35 pró­sent en allt að 60 pró­sent­um. And­virði rík­is­styrks­ins hleypur á 430 millj­ónum króna á meðan heild­ar­fjár­fest­ing Matorku vegna bleikju­eld­is­ins við Grinda­vík er áætluð um 1.200 millj­ónir króna. Að með­töldum áður­nefndum þjálf­un­ar­styrk, þar sem kostn­aður getur numið allt að 295 millj­ónum króna, en þá slagar hlut­fall íviln­anna af fjár­fest­ing­unni upp í 60 pró­sent.

Auglýsing

Skekkir sam­keppni



Í sam­tali við Kast­ljósið sagði Hösk­uldur Stein­ars­son, for­maður sam­taka fisk­eld­is­fyr­ir­tækja, það skjóta skökku við að ríkið leggi einu fyr­ir­tæki til miklar íviln­anir á sama tíma og fyr­ir­tæki sem hafi byggt upp fram­leiðslu sína og markað án þess að hafa notið við­líkra styrkja. Hösk­uldur benti á í Kast­ljós­inu að áætluð árs­fram­leiðsla Matorku sé álíka og öll bleikju­fram­leiðsla á Íslandi á árs­grund­velli. Fyr­ir­ætl­anir Matorku feli í sér að heims­fram­leiðslan auk­ist um helm­ing, en Íslend­ingar fram­leiða 65 pró­sent allrar bleikju í heim­in­um. Fyr­ir­ætl­an­irnar muni aug­ljós­lega hafa áhrif á markað fyrir afurð­irnar og þannig vinni ríkið í raun gegn afurð­un­um.

Ragn­heiður Elín Árna­dótt­ir, iðn­að­ar­ráð­herra, sagði fjár­fest­inga­samn­ing rík­is­ins við Matorku sam­bæri­legan við aðra slíka samn­inga sem gerðir hafa verið til að laða erlenda fjár­fest­ingu til lands­ins og til að skapa skil­yrði í sam­keppni við aðrar þjóð­ir. Þá sagð­ist hún ekki hafa áhyggjur af því að íviln­anir til fyr­ir­tæk­is­ins skekki sam­keppn­is­stöðu í geir­anum og bætti við að önnur fyr­ir­tæki geti sömu­leiðis leitað eftir slíkum samn­ingum hyggi þau á fjár­fest­ingu.

Eig­endur tengdir fjár­mála­ráð­herra



Eins og fram hefur komið í fjöl­miðlum eru helstu eig­endur Matorku þeir Bene­dikt Ein­ars­son og Eiríkur Svav­ars­son. Bene­dikt er frændi Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra og fyrr­ver­andi við­skipta­fé­lagi hans á árunum fyrir hrun. Þá er Bene­dikt hlut­hafi í Thorsil, sem hlaut nýverið fjár­fest­inga­samn­ing við ríkið vegna kís­il­vers á Reykja­nesi og þá á hann hlut í félag­inu sem keypti Borgn af Lands­ban­anum nýver­ið, og Kjarn­inn sagði frá fyrstur fjöl­miðla.

Eiríkur Svav­ars­son er hæsta­rétt­ar­lög­maður og átti sæti í hafta­hópi stjórn­valda þar til nýlega, en þangað var hann ráð­inn af Bjarna Bene­dikts­syni. Eiríkur var áber­andi í sam­tök­unum InDefence og hefur meðal ann­ars gegnt trún­að­ar­störfum fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í Garða­bæ. Eig­in­kona hans er einn stofn­enda Matorku.

Við­bót klukkan 13:11 18. mars 2015:



Bene­dikt Ein­ars­son, lög­maður og fjár­fest­ir, seg­ist ekki eiga neinn eign­ar­hlut, hvorki beint né óbeint, í Matorku ehf. eða sviss­neska félag­inu Matorku Hold­ing AG. Í tölvu­pósti sem Bene­dikt sendi Kjarn­anum seg­ir: „Ég sit í stjórn Matorku Hold­ing AG fyrir hönd hlut­hafa sem heitir P126 ehf., en það félag er að fullu í eigu föður míns, Ein­ars Sveins­son­ar, í gegnum erlent eign­ar­halds­fé­lag hans. P126 á tæp­lega 5% í Matorku og því ekki meiri­hluta­eig­andi (Mig minnir jafn­framt að hlutur Eiríks Svav­ars­sonar og hans konu sé undir 20%). Ég er ekki held­ur, hvorki beint né óbeint, hlut­hafi í Borgun eða Thorsil.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None