Fjármálaeftirlitið veitir ekki upplýsingar um hvort það sé að skoða Símasölu

S--minn_02.jpg
Auglýsing

Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) veitir ekki upp­lýs­ingar um hvort að sala á tíu pró­sent hlut í Sím­anum áður en útboð á hlutafé í honum fór fram sé til skoð­unar hjá stofn­un­inni. Þetta kemur fram í svari Unnar Gunn­ars­dótt­ur, for­stjóra FME, við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um mál­ið.

Þar segir Unnur að eft­ir­litið geti ekki veitt upp­lýs­ingar um hvort mál séu til með­ferðar eða hvort það hygg­ist taka mál til skoð­un­ar, fyrr en að máls­með­ferð sé lok­ið. Þá verði upp­lýst um það í formi gagn­sæ­istil­kynn­ing­ar. "Bent er á ríka trún­að­ar­skyldu Fjár­mála­eft­ir­lits­ins sam­kvæmt lögum sem tak­markar mögu­leika stofn­un­ar­innar til að tjá sig opin­ber­lega um mál sem eru til með­ferð­ar".

Banka­sýslan hefur verið í sam­bandi við Kaup­skil



Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks hef­ur beint spurn­ingum í níu liðum til Banka­sýslu rík­is­ins vegna sölu Arion banka á eign­ar­hlut í Sím­an­um. Meðal þess sem þing­mað­ur­inn spyr að er hvers vegna vild­ar­við­skipt­ar­vinum bank­ans hafi verið seldur hlutur í Sím­anum á undan öðrum á mun lægra gengi en í almennu útboði á 21 pró­senta hlut í síð­ustu viku. Hann spyr einnig um hvert ferlið hafi ver­ið þegar ákveðnum við­skipta­vinum og stjórn­endum Sím­ans var boðið að kaupa hluti í fyr­ir­tæk­inu á undan öðrum og hvort salan hafi mögu­lega falið í sér mark­aðs­mis­notk­un.

Jón Gunnar Jóns­son, for­stjóri Banka­sýslu rík­is­ins, segir í sam­tali við Kjarn­ann að stofn­unin muni svara fyr­ir­spurn Guð­laugs. Engin ákvörðun hafi verið tekið inn­an­hús um næstu skref en Banka­sýslan, sem fer með 13 pró­sent hlut rík­is­ins í Arion banka, hafi verið í sam­bandi við Kaup­skil, sem heldur á 87 pró­sent eign­ar­hlut ­kröfu­hafa gamla Kaup­þings í bank­an­um, vegna máls­ins. Stjórn Kaup­skila mun taka málið til umfjöll­unar síðar í þess­ari viku og Reynir Axels­son, ­stjórn­ar­for­maður Kaup­skila, sagði í sam­tali við Morg­un­blaðið í gær að til greina komi að beina fyr­ir­spurnum til bank­ans varð­andi sölu­ferlið en stjórnin hafi ekki tekið neina afstöðu enn­þá.

Auglýsing

Keyptu á lægra verði í aðdrag­anda útboðs



Al­mennu hluta­fjár­út­boði Arion banka á 21 pró­senta hlut í Sím­anum lauk í síð­ustu viku og verða bréf félags­ins tekin til við­skipta í Kaup­höll­inni á morg­un. Mikil umfram­eft­ir­spurn var í útboð­inu og seld­ust bréfin á með­al­geng­inu 3,3 krónur á hlut.

Áður, í ágúst síð­ast­liðn­um, var gengið frá sölu fimm pró­senta hlutar í félag­inu á geng­inu 2,5 til Orra Hauks­son­ar, for­stjóra Sím­ans, og fleiri stjórn­enda félags­ins auk ann­arra fjár­festa. Í aðdrag­anda útboðs­ins seldi Arion banki síðan vild­ar­við­skipt­ar­vinum sínum sam­tals fimm pró­senta hlut á geng­inu 2,8 krón­ur. Alls átti bank­inn 38 pró­senta hlut í Sím­an­um, sem hann eign­að­ist eftir end­ur­skipu­lagn­ingu félags­ins árið 2012, og stendur því eftir með undir tíu pró­sent eign­ar­hlut.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None