Fleiri en 150 hafa sótt um hæli á Íslandi í ár - Fjöldi umsókna margfaldaðist í ágúst

innanr.kisr_..uneyti.jpg
Auglýsing

Sam­tals sóttu 154 ein­stak­lingar um hæli á Íslandi á tíma­bil­inu frá 1. jan­úar 2015 til 31. agúst 2015. Það er 66 pró­sent aukn­ing miðað við sama tíma­bil í fyrra en þá höfðu 93 sótt um hæli. Í ágúst sóttu 49 manns um hæli á Íslandi en það eru jafn­margir og sóttu um sam­tals síð­ustu þrjá mán­uð­ina á und­an.

Þetta kemur fram á vef inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins í dag. „Til að setja töl­una [49] í sam­hengi þá sóttu alls 35 manns um hæli á Íslandi árið 2009 og 50 árið 2010, sbr. með­fylgj­andi mynd hér að neð­an. Heild­ar­fjöldi umsækj­enda í ár er var­lega áætl­að­ur,“ segir í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins þar sem áætlað er að umsóknir í ár verði um 250 tals­ins, sam­an­borið við um 170 í fyrra og árið 2013.

Umsækj­endur eru af sam­tals 32 þjóð­ernum auk þess sem einn umsækj­andi er rík­is­fangs­laus. Alb­anir eru fjöl­menn­astir og telja 51 umsækj­anda, eða tæp­lega ­þriðj­ung umsókna. „Í ljósi borg­ara­styrj­ald­ar­innar sem geisað hefur í Sýr­landi síðan árið 2011 þarf ekki að undr­ast að Sýr­lend­ingar eru næst­fjöl­menn­asta þjóð­ernið meðal umsækj­enda. Þeir eru átján tals­ins eða 12% allra umsókna,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Auglýsing

Fram kemur að átta málum Sýr­lend­inga hafi verið lokið hér á landi með ákvörðun Útlend­inga­stofn­unar á árinu. Fjórum var veitt staða flótta­manns og hæli á Íslandi og þrír voru sendir til ann­ars Evr­ópu­ríkis á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­inn­ar. Í einu máli hafði umsækj­andi þegar fengið vernd í Evr­ópu­ríki og var honum gert að snúa aftur þang­að.

„Í ljósi borg­ara­styrj­ald­ar­innar í Sýr­landi kemur ekki til greina að vísa Sýr­lend­ingum aftur þang­að. Sé hætta á að sýr­lenskum umsækj­endum sé vísað þang­að, verði þeim snúið til ann­ars Evr­ópu­rík­is, kemur ekki til greina að senda þá til við­kom­andi rík­is.

Leit­ast er við að leysa hratt og örugg­lega úr málum Sýr­lend­inga og borg­ara ann­arra ríkja þar sem stríðs­á­tök geisa. Þannig var málum tveggja Sýr­lend­inga lokið á innan við mán­uði í júlí,“ segir á vef ráðu­neyt­is­ins.

48 veitti hæli eða vernd en 50 synjað



Út­lend­inga­stofnun veitti 48 manns hæli eða aðra vernd á tíma­bil­inu frá jana­úar til loka ágúst 2015. Fimm­tíu var synjað um vernd. „Af þeim málum sem lauk með ákvörðun – þar sem umsækj­andi dró umsókn ekki til baka eða lét sig hverfa – var veitt vernd í 35% til­fella. 36% mála lauk með synjun um hæli og ræður hið háa hlut­fall umsækj­enda frá Balkanskaga miklu þar um. Þá lauk 29% mála með end­ur­send­ingu til ann­ars öruggs Evr­ópu­ríki, ýmist sam­kvæmt Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­inni eða á grund­velli þess að umsækj­andi hafði þegar fengið veitta vernd í við­kom­andi rík­i.“

Frétt á vef­síðu inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None