Sigríður Auður Arnardóttir hefur verið skipuð ráðuneytisstjóri í umhverfis- og auðlindarráðuneytinu frá og með 1. mars næstkomandi. Með skipun hennar gegna í fyrsta sinn fleiri konur en karlar embætti ráðuneytisstjóra í Stjórnarráði Íslands.
Sigríður Auður er lögfræðingur og hefur í ráðuneytinu frá árinu 1998 og gegnt embætti skrifstofustjóra frá árinu 2003, á skrifstofu laga og upplýsingamála,
Sigríður Auður Arnardóttir.
skrifstofu laga og stjórnsýslu og á skrifstofu umhverfis og skipulags. Hún var staðgengill ráðuneytisstjóra frá 2007 til 1. mars 2014 þegar hún var settur ráðuneytisstjóri til eins árs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá umhverfis- og auðlindarráðueytinu.
Stefán Thors, fráfarandi ráðuneytisstjóri, fer til starfa í forsætisráðuneytinu.