Fleiri myndbönd til af umhverfisspjöllum vélhjólamanna

Screen.Shot-.2014.10.27.at-.11.30.24.jpg
Auglýsing

Eins og Kjarn­inn greindi frá á föstu­dag­inn hyggst Umhverf­is­stofnun kæra banda­rískt vél­hjólateymi og þrjá leið­sögu­menn á veg­um ­ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæk­is­ins Arctic Rider til lög­reglu vegna utan­vega­akst­urs og umhverf­is­spjalla á hálendi Íslands í sept­em­ber.

Ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæk­ið, sem ætlar að bjóða ferða­mönnum upp á skipu­lagðar mót­or­kross vél­hjóla­ferðir næsta sum­ar, ann­að­ist skipu­lagn­ingu fimm daga ferðar Banda­ríkja­mann­anna, en um prufu­ferð var að ræða. Mynd­band af ferð­inni, þar sem menn­irnir sjást stunda umfangs­mik­inn utan­vega­akstur í námunda við Heklu, hefur vakið athygli á net­inu. Að mati Umhverf­is­stofn­unar varðar það sem sést á mynd­band­inu við lög um nátt­úru­vernd, en meint brot mann­anna varða allt að fjög­urra ára fang­elsi.

Vís­aði ásök­unum um umhverf­is­spjöll á bug



Eig­andi Arctic Rider, Jóhannes Svein­björns­son, vís­aði ásök­unum um umhverf­is­spjöll á bug í sam­tali við Kjarn­ann á föstu­dag­inn. "Það er mjög sær­andi að heyra við­brögð fólks við þess­ari ferð, því við keyrðum aldrei út fyrir slóða. Við keyrðum á mal­ar­veg­um, en það liggja jeppa­vegir út um allt land eins og flestir Íslend­ingar vita. Fólk sem fer aldrei út úr 101 veit þetta ekki, en svo drullar það yfir mann eins og maður sé búinn að eyði­leggja land­ið," sagði Jóhannes í sam­tali við Kjarn­ann.

"Við leggjum mikið upp úr því að fara aldrei út fyrir slóða. Það var einu sinni sem einn okkar fór út úr slóða, og þá lét ég hann laga grasið, ég var svo harður á þessu. Ég sagði líka við hóp­inn að ef ein­hver færi út fyrir slóða þá yrði ekki hjólað meira þann dag­inn. Ég er ekk­ert stress­aður yfir þessu, því ég veit að við gerðum ekk­ert rang­t."

Auglýsing

"So much fun just ripp­in' around!"



Áð­ur­nefndur Jóhannes hefur und­an­farið verið dug­legur við að birta mynd­bönd af sér og félögum sínum á Youtube að stunda vél­hjóla­akstur í nátt­úru Íslands. Umhverf­is­stofnun hefur borist fjöldi ábend­inga um mynd­bönd­in, og mun stofn­unin sömu­leiðis vísa þeim til rann­sóknar lög­reglu.

Motorkross

Á einu mynd­band­inu, sem Jóhannes setti inn á Youtube þann 25. maí síð­ast­lið­inn, má sjá hvar hann og fleiri vél­hjóla­menn stunda gengd­ar­lausan utan­vega­akst­ur, að því er talið er á svæði í námunda við Heklu, þar sem þeir sjást aka yfir mosa og annan við­kæman gróð­ursvörð. Í mynbandinu heyrst þeg­ar sá sem tekur mynd­bandið seg­ir: "So much fun just ripp­in' around!" Sjón er sögu rík­ari.

Umhverf­is­stofnun lítur athæfi mann­anna mjög alvar­legum aug­um, og vinnur nú að því að setja saman kæru sem stofn­unin hyggst senda lög­reglu innan skamms.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None