Þyrla Landhelgisgæslunnar fann litla flugvél sem leitað hafði verið að frá því síðdegis í dag um klukkan 20:30 í kvöld, innarlega í Barkárdal við Gíslahnjúk. Annar þeirra sem var í vélinni var þá látinn en hinn var fluttur með þyrlunni til Akureyrar og þaðan með sjúkraflugvél til Reykjavíkur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra.
Þar segir að umfangsmikil leit lögreglu, björgunarsveita og Landhelgisgæslunnarað lítilli flugvél sem hélt frá Akureyri með tveimur mönnum um klukkan 14 áleiðis til Keflavíkur. Hún fannst síðan, líkt og áður sagði, um klukkan 20:30 í kvöld.
Í tilkynningunni segir að ekki sé hægt að veita frekari upplýsingar um ástand þess slasaða að svö stöddu. Þá sé heldur ekki hægt að greina frá nöfnum þeirra sem í flugvélinni voru. Rannsókn málsins stendur yfir.