Formaður Framsýnar líkir seðlabankastjóra við bjarndýr í híði

A.alsteinn.Baldurssonl.jpg
Auglýsing

Aðal­steinn Árni Bald­urs­son, for­mað­ur­ Fram­sýn­ar-­stétt­ar­fé­lags, gagn­rýnir Má Guð­munds­son seðla­banka­stjóra harð­lega ­fyrir afstöðu hans til kom­andi kjara­við­ræðna, í við­tali við hér­aðs­frétta­blað­ið Skarp á Húsa­vík sem kom út í gær.

Seðla­banka­stjóri hefur sagt að mik­il­vægt sé að kom­andi kjara­samn­ingar feli ekki í sér óhóf­legar launa­hækk­an­ir, og ekki sé raun­hæft að laun hækki um meira en 3,5 pró­sent á ári. Sam­tök atvinnu­lífs­ins hafa tekið í svip­að­an ­streng og sagt að svig­rúm til launa­hækk­anna á þessu ári sé ekki meira en þrjú til fjögur pró­sent.

Milli­stjórn­endur og stjórn­endur stjórna launa­skrið­inu



„Þetta er bara gömul tugga. Seðla­banka­stjór­inn virð­ist vera eins og björn­inn, hann heldur sér vak­andi þegar verka­lýðs­hreyf­ingin er að móta sína kröfu­gerð fyrir lág­launa­fólkið í land­inu. Þess á milli skríður banka­stjór­inn í híði sitt og sefur vært, svo sem þegar kenn­ar­ar, flug­menn og læknar hafa verið að semja um sín kjör. Stað­reyndin er sú að milli­stjórn­endur og stjórn­endur hafa hækkað gríð­ar­lega í launum og stjórna í raun og veru launa­skrið­in­u,“ segir for­maður Fram­sýnar í við­tali við Skarp. Hann segir að von sé á kröfu­gerð Starfs­greina­sam­bands Íslands líti dags­ins ljós í lok mán­að­ar­ins.

Sam­tök atvinnu­lífs­ins fá líka sinn skerf af gagn­rýni for­manns Fram­sýn­ar. „Stjórn­ar­for­maður Sam­taka atvinnu­lífs­ins er jafn­framt for­stjóri Icelandair Group. Þessi ágæti maður talar núna um nauð­syn þess að semja um „hóf­leg­ar“ kjara­bæt­ur. Hann samdi nýverið við flug­menn um miklar launa­hækk­anir í reyk­fylltu bak­her­bergi. Ég skora á for­stjór­ann að birta þá  samn­inga, þannig að al­menn­ingur geti áttað sig á raun­veru­leik­an­um.“

Auglýsing

Þá segir Aðal­steinn Árni að ekki komi til greina að semja um pró­sentu­hækk­an­ir, kra­f­ist verði krónu­tölu­hækk­anna í kom­andi kjara­við­ræð­um. „Pró­sentu­hækk­anir koma þeim hæst laun­uðu helst til góða, sá sem er með milljón á mán­uði fær miklu meira í vasann, en sá sem er með 300 þús­und krón­ur. Ég er harður á því að samið verði um krónu­tölu­hækk­un, en ekki pró­sentu­hækk­un. Ég vona að Starfs­greina­sam­bandið standi fast á þess­ari kröf­u.“

Hagn­aður skili sér líka til starfs­manna



For­maður Fram­sýnar segir svig­rúm til umtals­verðra launa­hækk­anna til staðar þrátt fyrir varn­að­ar­orð seðla­banka­stjóra og Sam­taka atvinnu­lífs­ins.

„Stór hluti sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja er að skila miklum hagn­aði, þannig að þar á bæ er klár­lega gott svig­rúm til að hækka launin veru­lega. Ferða­þjón­ustan hefur vaxið gríð­ar­lega og veltan sömu­leið­is. Stóru fyr­ir­tækin skila eig­endum sínum mynd­ar­legum hagn­aði og him­inhá laun sumra stjórn­enda hafa vakið athygli, svo ekki sé talað um ríf­legar arð­greiðslur til hlut­hafa. Verslun og þjón­usta virð­is­t ­sömu­leiðis vera á ágætum gír, sem og stór­iðj­an. Á þetta komum við til með að benda í kom­andi kjara­við­ræð­um, töl­urnar tala sínu máli og almennt starfs­fólk þess­ara fyr­ir­tækja á að njóta góðs af vel­gengn­inn­i.“

„Munum aldrei skrifa upp á 3-4 pró­senta launa­hækk­un“



Að­al­steinn Árni á von á hörðum vetri framundan í kjara­bar­átt­unni. „Það er hafður vetur framundan og ég bið almennt launa­fólk um að búa sig undir átök. Við getum ekki enn eina ferð­ina setið eftir í launa­málum og horft nán­ast á allar aðrar stéttir hækka miklu meira.“

Aðspurður um hvers konar aðgerðir launa­fólks séu í far­vatn­inu, svar­aði Aðal­steinn Árni í sam­tali við blaða­mann Skarps: „Það er hægt að fara ýmsar leið­ir, ég er ekk­ert endi­lega að tala um alls­herj­ar­verk­fall. Verka­lýðs­hreyf­ingin getur vel sýnt klærnar með áber­andi og afger­andi hætti, ef henni er mis­boð­ið. Auð­vitað vona ég að ekki þurfi að grípa til ein­hverra aðgerða, en eins og landið liggur núna stefnir aug­ljós­lega í harðar kjara­við­ræð­ur. Við munum aldrei skrifa upp á þriggja til fjög­urra pró­senta launa­hækk­un.“

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None