Forsætisráðherra skilar þinginu ekki skýrslu um upplýsingalög

sigmund.png
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra mun ekki legga fram skýrslu um fram­kvæmd upp­lýs­inga­laga á þessu þingi eins og áformað hafði ver­ið. Þetta kemur fram í upp­færðri þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar sem var birt á vef for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins eftir að þing kom saman eftir jóla­frí. Ráð­herra hafði áður sagst ætla að leggja skýrsl­una fram á vor­þingi.

Í upp­lýs­inga­lögum sem tóku gildi í byrjun árs­ins 2013 kemur fram að for­sæt­is­ráð­herra „skal reglu­lega gefa Alþingi skýrslu um fram­kvæmd laga þess­ara, þar á meðal um hvað áunn­ist hafi varð­andi aukið aðgengi almenn­ings að upp­lýs­ing­um.“ Á þessum rúmu tveimur árum frá gild­is­töku lag­anna hefur ekki verið gefin skýrsla af þessu tagi.

Mark­miðið með lög­unum var að tryggja gegn­sæi í stjórn­sýslu og við með­ferð opin­berra hags­muna. Í þeim er meðal ann­ars kveðið á um aðgang almenn­ings að upp­lýs­ingum og um að stjórn­völd eigi að veita almenn­ingi upp­lýs­ingar um starf­semi sína að eigin frum­kvæði.

Auglýsing

Ætl­aði að taka saman eigi síðar en núna



Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, spurði Sig­mund Davíð um það í maí í fyrra hvenær hann hyggð­ist gefa Alþingi skýrslu um fram­kvæmd lag­anna, eins og kveðið er á um. Í júní svar­aði Sig­mundur Davíð fyr­ir­spurn­inni og sagði að ákveðið hefði verið að fyrsta skýrslan um efnið yrði tekin saman „eigi síðar en í árs­byrjun 2015 og lögð fram á Alþingi á vor­þingi það ár. Hún mun þá gefa yfir­lit yfir þau tvö ár sem liðið hafa frá gild­is­töku nýrra upp­lýs­inga­laga,“ sagð­i í svar­inu.

Þar kom einnig fram að skýrslan ætti að inni­halda sund­ur­lið­aðar upp­lýs­ingar um starf úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál á þessum tveimur árum. „Þar komi fram hvaða hópar kæri helst til nefnd­ar­inn­ar, hver sé máls­hraði hjá nefnd­inni og hvert sé efni og umfang þeirra mála sem hún leysir úr.“ Þá átti að gefa yfir­lit yfir veit­ingu und­an­þága og gefið yfir­lit yfir starf ráðu­neyt­is­ins þegar kemur að birt­ingu upp­lýs­inga að frum­kvæði stjórn­valda.

Í dag lagði Birgitta Jóns­dótt­ir, þing­maður Pírata, fram aðra fyr­ir­spurn til for­sæt­is­ráð­herra um mál­ið. Þar spyr hún ráð­herra hvers vegna hann hafi ekki enn gefið Alþingi skýrslu um fram­kvæmd lag­anna og hvenær hann hygg­ist gefa þing­inu skýrsl­una.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None