Forskot RÚV horfið - Áhorf á sjónvarpsfréttir RÚV og Stöðvar 2 nánast það sama

stoe---2.jpg
Auglýsing

Áhorf á frétta­tíma Stöðvar 2 og RÚV er nú orðið nán­ast það sama. Frétta­tím­arnir hafa skipst á að vera með lít­il­lega meira áhorf und­an­farnar vikur og mun­ur­inn á með­al­á­horfi er vart mæl­an­leg­ar. Þetta eru mikil umskipti frá því sem áður var. Fyrir sjö árum horfðu rúm­lega fimmt­ungi fleiri á fréttir RÚV en fréttir Stöðvar 2. Þetta er meðal þess sem hægt er að lesa út úr mæl­ingum Gallup á áhorfi lands­manna á frétt­ir. 

Áhorf á fréttir Stöðvar 2 og RÚV hef­ur  verið mjög jafnt und­an­farnar vik­ur. Á síð­ustu fimm vikum sem Gallup hefur mælt hefur bæði með­al­á­horf á frétta­tím­ann (fjöldi þeirra sem horfa á með­alm­ín­útu) og upp­safnað áhorf (þeir sem horfa í að minnsta kosti fimm mín­útur á frétta­tím­ann sam­fleytt)  tví­vegis verið meira á fréttir Stöðvar 2 en á fréttir RÚV. Í þremur þeirra vikna hafa hins vegar fleiri áhorf­endur horft á fréttir RÚV. Í síð­ustu mældu viku, 5. til 11. októ­ber, var mun­ur­inn á með­al­á­horf innan skekkju­marka. Alls horfðu 21,6 pró­sent áhorf­enda á aldr­inum 12 til 80 ára á fréttir RÚV en 21,5 pró­sent á fréttir Stöðvar 2. Upp­safnað áhorf á fréttir RÚV var þó eili­tíð meira en á fréttir Stöðvar 2.

Þegar horft er á með­al­tal áhorfs á frétta­tíma sjón­varps­stöðv­anna tveggja yfir síð­ustu fimm mældu vikur kemur í ljós að með­al­á­horf á fréttir RÚV í ald­urs­hópnum 12 til 80 ára er 20,4 pró­sent en á fréttir Stöðvar 2 20,04 pró­sent. Upp­safnað áhorf á fréttir RÚV á tíma­bil­inu er 25,46 pró­sent að með­al­tali en á fréttir Stöðvar 2 er það 24,8 pró­sent.

Auglýsing

Vert er að taka fram að sjón­varps­fréttir Stöðvar 2 eru sýndar í opinni dag­skrá. Þær standa því öllum sjón­varps­á­horf­endum til boða, ekki bara áskrif­endum stöðv­ar­inn­ar.

Frétta­stofa Stöðvar 2 komin með svipað áhorf



Með­al­á­horf á frétta­tíma beggja sjón­varps­stöðv­anna sem halda úti slíkum hefur dreg­ist umtals­vert saman á und­an­förnum árum.

Í sept­em­ber 2008 horfðu að með­al­tali 27,8 pró­sent lands­manna í ald­urs­hópnum 12 til 80 ára á með­alm­ín­útu af fréttir RÚV í vikum 36 til 39. Í fyrra horfðu að með­al­tali 22,2 pró­sent sama hóps á kvöldréttir RÚV í vikum 35 til 38. Í ár er  það hlut­fall í vikum 37 til 41 20,4 pró­sent. Áhorfið hefur því dreg­ist saman um tæp 27 pró­sent á sjö árum og rúm átta pró­sent frá því því sem það var að með­al­tali í sept­em­ber í fyrra. Ef miðað er við upp­safnað áhorf á fréttir RÚV þá hefur það dreg­ist enn meira sam­an.

Stöð 2 hefur tek­ist betur að halda á áhorf­endum sem horfa á á með­alm­ín­útu af frétta­tíma stöðv­ar­innar en RÚV. Í sept­em­ber 2008 horfið 21,9 pró­sent lands­manna í ald­urs­hópnum 12 til 80 ára á frétta­tíma Stöðvar 2, í fyrra var það hlut­fall 21 pró­sent og í ár er það 20,04 pró­sent. Þótt áhorfið hafi dreg­ist lít­il­lega saman þá er sá sam­dráttur mun minni en hjá frétta­stofu RÚV. Bilið á milli áhorfs á fréttir Stöðvar 2 og RÚV hefur því nán­ast horfið á und­an­förnum árum. Í sept­em­ber 2008 horfðu 21 pró­sent fleiri á með­alm­ín­útu af fréttum RÚV en Stöðvar 2. Árið 2014 var mun­ur­inn orðin 5,4 pró­sent og síð­ustu fimm vikur hefur hann vart verið mæl­an­leg­ur. Nú ger­ist það reglu­lega að viku­legt áhorf á fréttir Stöðvar 2 er meira en á fréttir RÚV. Það gerð­ist síð­ast í byrjun októ­ber.



Auk þess hefur upp­safnað áhorf á fréttir Stöðvar 2 minnkað mun minna en upp­safnað áhorf á fréttir RÚV. Í sept­em­ber 2008 var það 25,6 pró­sent en er í dag 24,8 pró­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None