Framkvæmdastjóri Mílu fékk að kaupa í Símanum en starfsmenn fá ekki kauprétti

orri-hauks.jpg
Auglýsing

Á sama tíma og starfs­menn Mílu, dótt­ur­fé­lags Sím­ans, eru und­an­skildir kaup­rétt­ar­stefnu félags­ins vegna sáttar við Sam­keppn­is­eft­ir­lit­ið, þá var fram­kvæmda­stjóri Mílu, Jón Rík­harð Krist­jáns­son, meðal þeirra stjórn­enda sem eign­uð­ust sam­tals fimm pró­senta hlut í Sím­anum á geng­ingu 2,5 krónur í ágúst síð­ast­liðnum. Starfs­menn Mílu eru einu starfs­menn innan Síma­sam­stæð­unnar sem fá ekki kaup­rétti fyrir allt að 600 þús­und krónur á ári á verð­inu 2,5 krónur á hlut en er þó frjálst að kaupa hluta­bréf í Sím­anum á hluta­bréfa­mark­aði, að því er segir í umfjöllun Frétta­blaðs­ins í dag. Á starfs­manna­fundi var starfs­fólki Mílu sagt að þeim verði bætt það upp að þeir geti ekki eign­ast kaup­rétti.

Í frétt Frétta­blaðs­ins segir að sátt Sím­ans við Sam­keppn­is­eft­ir­litið sé ástæða þess að starfs­menn Mílu njóti ekki kaup­rétta. Sáttin felur í sér kvaðir um aðskilnað Mílu frá Sím­an­um. Vegna þessa sendi eft­ir­lits­nefnd Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins stjórn Sím­ans bréf og spurði hvort stjórnin teldi kaup Jóns Rík­harðs sam­ræm­ast sátt­inni. Stjórnin sagði það mat stjórnar að kaup hans brytu ekki gegn sátt­inni, en í sátt­inni er ákvæði sem kveður á um að séu laun og önnur starfs­kjör starfs­manna Mílu tengd við afkomu skuli teng­ingin aðeins mið­ast við afkomu og árangur Mílu.

Í til­kynn­ingu til Kaup­hall­ar­innar í gær leið­rétti Sím­inn upp­lýs­ingar sem birt­ust í skrán­ing­ar­lýs­ingu. Þar sagði að fram­kvæmda­stjóri Mílu hafi kaup­rétti að hlutum í Sím­anum en það er ekki rétt.

Auglýsing

Sam­kvæmt heim­ildum Frétta­blaðs­ins gætir tals­verðar óánægju meðal starfs­manna Mílu. Hald­inn var starfs­manna­fundur vegna máls­ins fyrir skömmu þar sem fram kom að til stæði að bæta starfs­mönnum þetta upp. Jón Rík­harð segir í sam­tali við blaðið að ekki sé búið að ákveða með hvaða hætti það verði gert.

Skráð á markað í gær



Við­skipti með hluta­bréf í Sím­anum hófust í Kaup­höll­inni í gær og var loka­gengi bréf­anna 3,49 krónur á hlut. Með­al­gengi bréf­anna í útboði Arion banka í síð­ustu viku var 3,33 krónur á hlut.

Sala hluta­bréfa í Sím­anum í aðdra­ganga útboðs hafa verið mikið til umfjöll­unar að und­an­förnu í ljósi þess að stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins og með­fjár­festar þeirra fengu að kaupa fimm pró­sent hlut í Sím­anum á geng­inu 2,5 krónur á hlut í ágúst síð­ast­liðn­um. Sam­tals greiddi hóp­ur­inn 1.330 millj­ónir króna fyrir hlut­inn.

Auk þess fengu valdir við­skipta­vinir Arion banka að kaupa fimm pró­sent hlut á 2,8 krónur á hlut í sept­em­ber, skömmu áður en hluta­fjár­út­boð Sím­ans fór fram. Sá hópur hefur greitt um 1.490 millj­ónir króna fyrir sinn hlut. Þessi ráð­stöfun hefur verið harð­lega gagn­rýnd, meðal ann­ars á Alþingi og af stjórn­endum líf­eyr­is­sjóða sem eiga stóran hlut í Sím­an­um.

Virði hlut­ar ­fyrri hóps­ins hefur því hækkað um 40 pró­sent miðað við gengi bréfa í Sím­anum í lok fyrsta við­skipta­dags. Hann má ekki selja bréf sín fyrr en í byrjun árs 2017.

Virði hlutar síð­ari hóps­ins hefur hækkað um 25 pró­sent frá því að hann keypti hlut­inn. Sá hópur má selja sinn hlut í upp­hafi árs 2016.

Stjórn Sím­ans sendi frá sér til­kynn­ingu í lok fyrsta við­skipta­dags þar sem hún fagnar þeim áfanga sem félagið náði í dag með skrán­ingu í kaup­höll.

Þar segir einnig að „Stjórnin kann­ast ekki við að ólga sé innan hennar vegna fram­kvæmdar útboðs­ins, eins og full­yrt hefur verið í frétt­um. Stjórnin telur að við þessi tíma­mót verði fag­mennska sem fyrr aðals­merki félags­ins. Sím­inn er öfl­ug­asta fjar­skipta­fyr­ir­tæki lands­ins og það end­ur­spegl­ast í þeim áhuga og trausti sem fjár­festar sýna félag­in­u.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None