Framkvæmdastjóri Ögurvíkur: Rússar byrjaðir að loka á viðskipti

makríll-muynd.jpg
Auglýsing

Hjörtur Gísla­son, fram­kvæmda­stjóri sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­is­ins Ögur­vík­ur, sagði í við­tali við RÚV í gær að rúss­neskir aðilar væru byrj­aðir að loka á við­skipti með mak­ríl gagn­vart íslenskum fyr­ir­tækj­um. Það gerð­ist í gær­morg­un, og feng­ust þá upp­lýs­ingar um sterkur orðrómur væri um það á mörk­uðum að Rúss­nesk stjórn­völd ætl­uðu sér að útt­víkka inn­flutn­ings­bann sitt á mat­vælum frá Vest­ur­löndum enn frekar, og þannig að það næði til Íslands­, ekki síst vegna stuðn­ings Íslands við hertar póli­tískar og efna­hags­legar aðgerðir gegn Rúss­landi, sem rekja má rekja til póli­tískrar spennu og aðgerða Rússa í Úkra­ínu. Hjörtur sagð­ist þakk­látur fyrir að hafa fengið fund með utan­rík­is­ráðu­neyt­inu um þetta mál, en ótt­að­ist að það yrði ekki hlust­aða nægi­lega á þessar áhyggju­radd­ir.

Eins og Kjarn­inn greindi frá í gær var fundað um þessar áhyggjur í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu í gær, þar sem hags­muna­að­ilar í sjáv­ar­út­vegi, meðal ann­ars Kol­beinn Árna­son, fram­kvæmda­stjóri LÍÚ, komu áhyggjum sínum á fram­færi við Gunnar Braga Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra.

Miklir hags­munir eru í húfi fyrir íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki, en heild­arutan­rík­is­við­skipti við Rúss­land í fyrra námu ríf­lega 20 millj­örðum króna. Þar af voru um 18 millj­arðar vegna við­skipta með mak­ríl, en um 47 pró­sent af öllum mak­ríl sem veiddur var við Ísland í fyrra fór inn á Rúss­lands­mark­að.

Auglýsing

Hinn 15. októ­ber birti Evr­ópu­ráð­ið til­kynn­ingu, um að Ísland, Makedón­ía, Svart­fjalla­land, Alban­ía, Liechten­stein, Nor­eg­ur, auk Úkra­ínu og Georg­íu,stilltu sér upp með Evr­ópu­sam­bands­ríkj­um, með ákvörðun frá 23. júní, um hertar við­skipta­þvin­gangir gegn Rúss­um. Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans fór þetta illa í Rússa sem hafa hug á því að loka á við­skipti við þessi ríki, eða í það minnsta bregð­ast við með aðgerð­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None