Framsókn í Reykjavík á móti stefnu Framsóknar í ríkisstjórn

sveinbjorg-0-1.jpg
Auglýsing

Svein­björg Birna Svein­björns­dótt­ir, borg­ar­full­trúi Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina, segir það óttækt að Reyka­vík­ur­borg byggi til­lögu að kaupum á 500 félags­legum leigu­í­búðum á hug­myndum verk­efna­stjórnar um fram­tíð­ar­skipan hús­næð­is­mála, sem Eygló Harð­ar­dótt­ir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, skip­aði.  Hún greiddi því ein borg­ar­full­trúa atkvæði gegn til­lög­unni þegar hún var lögð fram í borg­ar­ráði í gær. Borg­ar­full­trúi Fram­sóknar er því ósam­mála til­lögu sem byggja á hug­myndum sem flokks­systir hennar og rík­is­stjórn flokks hennar bera á ábyrgð á að móta.

Sér­stök aðgerð­ar­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar



Í borg­ar­ráði í gær lagði Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri fram til­lögu um að áætlun um upp­bygg­ingu 500 félags­legra leigu­í­búða, á næstu fimm árum í Reykja­vík, yrði sam­þykkt. Áætl­unin byggir á nið­ur­stöðu verk­efna­stjórnar um fram­tíð­ar­skipan félags­legra hús­næð­is­mála, sem skil­aði af sér skýrslu í maí 2014. Verk­efna­stjórnin var skipuð af Eygló Harð­ar­dótt­ur, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra. Eygló er ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins og áætlun verk­efna­stjórn­ar­innar er liður í sér­stakri aðgerð­ar­á­ætlun rík­is­stjórnar Íslands, sem lýtur for­sæti Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem er ætlað að „taka á skulda­vanda heim­ila á Íslandi og til að tryggja stöð­ug­leik og gagn­sæi á hús­næð­is­lána­mark­aði til fram­tíð­ar“.

Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismála­ráðherra, skipaði verkefnastjórn um framtíðarskipan húsnæðismála. Eygló Harð­ar­dótt­ir,

félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra.

Í skýrslu verk­efna­stjórn­ar­inn­ar, sem Eygló skip­aði, var meðal ann­ars lagt til að „í stað nið­ur­greiddra vaxta komi til 25% stofn­fram­lag til félags­legs hús­næð­is. Að auki komi a.m.k. 10% stofn­fram­lag frá sveit­ar­fé­lög­um. Með þessum hætti er talið að leigu­verð í félags­legu hús­næði geti lækkað um 10–20%.“

Auglýsing

Í áætl­un­inni sem Dagur lagði fram í borg­ar­ráði í gær er gert ráð fyrir að Reykja­vík­ur­borg leggi til 10 pró­sent eigið fé í kaup á íbúð­unum 500 og að ríkið leggi til 20 pró­sent. Sex borg­ar­full­trúar Sam­fylk­ing­ar, Bjartrar fram­tíð­ar, Vinstri grænna, Pírata og Sjálf­stæð­is­flokks­ins sam­þykktu áætl­un­ina.

Fram­sókn á móti Fram­sókn



Svein­björg Birna Svein­björns­dótt­ir, borg­ar­full­trúi Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina, sem situr í borg­ar­ráði greiddi ein atkvæði á móti þess­ari til­lögu og lagði fram bókun þar sem seg­ir: „Fögnum við því að Reykja­vík­ur­borg sé búin að gera til­lögu um upp­bygg­ingu félags­legs hús­næðis og styðjum við hana sem slíka, en vegna aðferð­ar­fræð­innar sem fram kemur í grein­ar­gerð getum við ekki sam­þykkt til­lög­una eins og hún er sett fram, með eft­ir­far­andi rök­stuðn­ingi: Ótækt er að Reykja­vík­ur­borg byggi til­lögu sína um kaup á 500 félags­legum leigu­í­búðum næstu 5 árin á þeirri for­sendu að Reykja­vík­ur­borg leggi til 10% eigið fé í kaupin og ríkið leggi til 20% eigið fé í kaup­in, í sam­ræmi við hug­myndir um fram­tíð­ar­skipan hús­næð­is­mála. Verður að gera þær kröfu til stjórn­valds að það fari eftir gild­andi lögum og reglum í verk­efnum og áætl­ana­gerð sinni, eins og lög, fag­legt verk­lag og 2. gr. siða­reglna kjör­inna fulltrúa Reykja­vík­ur­borgar gerir ráð fyr­ir, en þar segir „Í störfum sínum er kjör­inn full­trúi bund­inn af lög­um, reglum og sam­þykktum Reykja­vík­ur­borg­ar“ og „Kjörnir full­trúar hafa ávallt í heiðri grund­vall­ar­reglur góðrar stjórn­sýslu í störfum sín­um“. Getur Reykja­vík­ur­borg ekki ákveðið hvernig fjár­lög verða næstu 5 árin og byggt stefnu sína á því og er því stefnan því miðuð við fram­an­greint ómögu­leg í fram­kvæmd. Við gerum þær kröfu að við áætl­ana­gerð og til­lögur sé farið að gild­andi lögum og reglum við yfir­lýs­ingar og stefnu­mörkun Reykja­vík­ur­borg­ar. Um 850 manns eru á biðlista eftir félags­legum leigu­í­búðum þar af um 550 manns í brýnni þörf. Til­lagan um fjölgun almennra félags­legra leigu­í­búða um 500 á næstu 5 árum, sem byggir ekki á gild­andi lögum eða heim­ild í fjár­lögum og er því ómögu­leg í fram­kvæmd per se, dugar ekki til að mæta þeirri þörf sem er til staðar í dag. Ljóst er að þarfa­grein­ing vel­ferð­ar­sviðs, sem til­lagan bygg­ist á, á ekki við rök að styðj­ast.“

Þar með er full­trúi Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina í borg­ar­ráði ósam­mála því að upp­bygg­ing á félags­legum leigu­í­búðum í Reykja­vík sé í sam­ræmi við hug­myndir um fram­tíð­ar­skipan hús­næð­is­mála, sem ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins ber ábyrgð á og rík­is­stjórnin stendur á bak­við.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None