Framsókn og flugvallarvinir leggja til að meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur skipti út fulltrúum sínum í stjórn Strætó vegna vandræða hjá Ferðaþjónustu fatlaðra. Þetta kemur fram í bókun sem Framsókn og flugvallarvinir lögðu fram á borgarráðsfundi í dag, og hefur verið send fjölmiðlum. Þá vill Framsókn að fulltrúar borgarinnar hjá Sambandi sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu leggji fram tillögu um að öll stjórn Strætó verði leyst frá störfum og ný stjórn skipuð.
Í bókuninni segir: „Meirihlutanum í Reykjavík, ber skylda til að axla ábyrgð og sýna borgarbúum þá virðingu að skipa nýja stjórn í Strætó bs, aðeins þannig verður hægt að endurbyggja traust á stjórn Strætó og borgarstjórn í þessum málaflokki.“
Framsókn og flugvallarvinir segja núverandi stjórn Strætó bera stjórnunarlega, faglega og pólitíska ábyrgð á verkefnum, verkferlum og aðgerðum í tengslum við þá fjölmörgu ágalla sem í ljós hafi komið í þjónustuveitingu við fatlað fólk. „Skipan neyðarstjórnar breytir engu þar um. Ítrekað hefur komið í ljós að þetta verkefni, og önnur verkefni, er ofviða núverandi stjórn og hefur hún misst traust íbúa höfuðborgarsvæðisins og borgarbúa til áframhaldandi verka.“
Framsókn vill að fulltrúa borgarinnar í stjórn Strætó, Kristínu Soffíu Jónsdóttur borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, verði vikið úr stjórninni sem og Birni Blöndal borgarfulltrúa Bjartrar Framtíðar, sem er varamaður í stjórn Strætó.
Þá segir í lok bókunar Framsóknar og flugvallarvina: „Jafnframt skorum við á fulltrúa Reykjavíkurborgar í Sambandi sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu að leggja fram tillögu á stjórnarfundi þar um að öll stjórn Strætó bs. verði leyst frá störfum og ný stjórn skipuð, en Reykjavíkurborg er eigandi 60,3% í Strætó bs., skv síðasta ársreikningi og hefur vald samkvæmt. því.“