Lögin Once Again, flutt af Friðriki Dór Jónssyni, og Unbroken, flutt af Maríu Ólafsdóttur eru komin í úrslit Söngvakeppninnar 2015, sem stendur nú yfir í Háskólabíó og er í beinni útsendingu á RÚV. Bæði lögin eru samin af Stop Wait Go hópnum. Þeir eru því að keppa við sjálfan sig. Í þeim hluta keppninnar sem nú er lokið giltu atkvæði dómnendar, sem Einar Bárðason veitir forstöðu, til hálfs á móti símakosningu þjóðarinnar.
Í síðari hlutanum keppa lögin tvö við hvort annað í svokölluðu einvígi um hylli þjóðarinnar og þar gildir símakosningin ein. Það lag sem verður hlutskarpast mun síðan verða fulltrúi Íslands í í Eurovision, söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, í Vín í maí næstkomandi.
Myndbönd af lögunum tveimur má sjá hér að neðan.
http://youtu.be/1X7yZODQqrA
http://youtu.be/xeL4gBbHhB0